Öruggur sigur Stjörnunnar gegn HK | Myndaveisla Smári Jökull Jónsson skrifar 24. febrúar 2023 21:15 Stjörnustúlkur fagna. Vísir/Hulda Margrét Stjarnan lagði HK að velli í Olís-deild kvenna í handknattleik í kvöld. Lokatölur 24-20 og Stjarnan heldur í við Val og ÍBV á toppi deildarinnar.
Lið Stjörnunnar hefur verið að spila vel í Olís-deildinni í vetur og þó svo að liðið hafi aðeins færst neðar í töflunni eru þær ennþá í baráttu við Val og ÍBV um efstu sætin. HK hefur hins vegar ekki átt sjö dagana sæla í vetur, aðeins unnið einn leik og var í neðsta sæti fyrir leikinn í kvöld. Það var því búist við nokkuð þægilegum sigri Stjörnunnar sem varð raunin. Stjarnan náði góðu forskoti i í fyrri hálfleik en var þó aðeins með þriggja marka forskot í hálfleik eftir að hafa komist mest sex mörkum yfir. Helena Rut Örvarsdóttir skýtur að marki.Vísir/Hulda Margrét Munurinn varð minnstur tvö mörk í síðari hálfleiknum og HK hélt í við Stjörnuna lengst af. Heimaliðið náði þó sex marka forskoti á ný og tryggði sér góðan sigur, lokatölur 24-20 eftir að HK hafði minnkað muninn undir lokin. Anna Karen Hansdóttir og Eva Björk Davíðsdóttir voru markahæstar hjá Stjörnunni með sjö mörk en Embla Steindórsdóttir, Aníta Eik Jónsdóttir, Sóley Ívarsdóttir og Alfa Brá Hagalín skoruðu allar fjögur mörk fyrir gestina. Hér fyrir neðan má sjá myndir sem Hulda Margrét, ljósmyndari Vísis, tók á leiknum í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Britney Cots leikmaður Stjörnunnar.Vísir/Hulda Margrét Britney Cots reynir að brjótast í gegnum vörn HK.Vísir/Hulda Margrét Vísir/Hulda Margrét Eva Björk Davíðsdóttir skýtur að marki í leiknum í kvöld.Vísir/Hulda Margrét Vísir/Hulda Margrét Hanna Guðrún Stefánsdóttir komin ein fram í hraðaupphlaup.Vísir/Hulda Margrét Vísir/Hulda Margrét Leandra Salvamoser skýtur að marki Stjörnunnar.Vísir/Hulda Margrét Sóley Ívarsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir HK í kvöld.Vísir/Hulda Margrét Vísir/Hulda Margrét Inga Dís Jóhannsdóttir skýtur framhjá Britney Cots.Vísir/Hulda Margrét Vísir/Hulda Margrét Vísir/Hulda Margrét Samúel Ívar Árnason er þjálfari HKVísir/Hulda Margrét Hrannar Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar.Vísir/Hulda Margrét
Olís-deild kvenna Stjarnan HK Mest lesið Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Fótbolti Gæti fengið fjögurra ára bann fyrir að reyna að fá gult spjald Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Hélt að Arnar væri að djóka í sér: „Maður var í smá sjokki“ Fótbolti Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Enski boltinn Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Körfubolti Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Fótbolti Stelpurnar okkar dönsuðu af gleði inn í klefa eftir leik Fótbolti Brentford hafnaði tilboði Manchester United Enski boltinn Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Körfubolti Fleiri fréttir Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Ein af hetjum Frakka í Laugardalshöllinni látin Færeyingar efstir þrátt fyrir sigur Íslands í síðasta leik Sautján mörk Elmars ekki nóg gegn Færeyjum Gísli þakklátur fjölskyldu sinni: „Minn stærsti mentor í handboltanum og lífinu“ Átti erfitt með að grípa bolta skömmu fyrir sögulega frammistöðu Strákarnir hófu HM á tapi gegn Rúmenum Tárin runnu þegar feðgarnir föðmuðust eftir afrek Gísla í Meistaradeildinni Enn á ný er Íslendingur á bak við sigur Magdeburg í Meistaradeildinni Gísli fékk „deja vu“: Árangur sem aðeins Íslendingar hafa náð Gísli Þorgeir bestur í annað sinn Gísli Þorgeir og Ómar Ingi Evrópumeistarar Nantes vann bronsið sem Barcelona nennti ekki Hetjuleg harka hjá Ómari og Gísla fleytti Magdeburg í úrslit Misstu sinn besta mann en fóru létt með undanúrslitaleikinn Sonurinn smitaði Aron af handa-, fóta- og munnsjúkdómi Landsmeistari í sextánda sinn á ferlinum Þrjár erlendar til nýliðanna á Akureyri „Stress og spenningur að flytja einn út og þurfa læra á uppþvottavél“ Rúnar látinn fara frá Leipzig Rut bætist í stóran hóp sem kvatt hefur landsliðið Sjá meira