Sýningin fer fram í SÍM gallerí að Hafnarstræti 16 og opnar klukkan 16:00. Samkvæmt Sigurði verður heitt vatn í boði, í anda sjö vikna föstunnar.
„Í einu guðspjallanna er Jesú nefndur Guðs lamb sem ber syndir heimsins. Á föstudaginn langa er hægt íhuga fórn lambsins á krossinum og merkingu þess að gefa sig æðri mætti alfarið á vald,“ segir Sigurður Unnar og bætir við að viðfangsefni sýningarinnar sé hógvær hjörð drottins, guðir, hundar og þöglir andar.

Gaman að koma fólki að óvörum
Sigurður segist lánsamur að starfa á ljósmyndastofu sem nefnist Passamyndir en stofan er gegnt sýslumannsembættinu.
„Fólk kemur aðallega til að láta taka mynd sem verður að fylgja umsókn um hvers kyns skírteini. Ég tek því á móti fólki sem er skyldað í myndatöku fyrir hið opinbera.
Það gleður mig að geta komið þeim að óvörum og shanghæja þau í listaverkefni.
Haustið 2021 hélt ég sýningu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur á ljósmyndum sem ég tók af sjötugum karlmönnum í ökuskírteini. Þar var ég líka að leita að því heilaga í fólki.
Ég skipaði þá í hlutverk konunga og fékk þá til að blessa mig sem innvígsluathöfn í fullorðinna manna tölu.“

Verkefni um bænina
„Fyrir þessa sýningu var ferlið þannig að ég leyfði opinberu myndinni að vera í friði. Að lokinni skírteinismyndatöku tók ég mér stöðu og bað þau um að vera með í verkefni um bænina. Fólk tók því almennt vel. Ég hafði svo samband skriflega og spurði þau hvort þau biðji, fyrir hverju og til hvers. Sum sögðust biðja, önnur ekki.
Pabbi sagði til dæmis strax nei á innsoginu þegar ég spurði hann.“
„Ágætt að setja raunir mínar í stærra samhengi“
Það má með sanni segja að Sigurður fari eigin leiðir í list sinni.
„Ég myndi lýsa minni listsköpun á þann veg að ég reyni að leika mér eins mikið og ég mögulega get.
Ef ég tek lífinu of alvarlega fer það fljótlega að snúast um hvort ég fari í bakarí á morgnana og kaupi sætabrauð eða ekki. Þá er ágætt fyrir mig að setja raunir mínar í stærra samhengi og biðja um hjálp.
Afrakstur þess er yfirleitt sköpun.“
Sýningin stendur til sumardagsins fyrsta, 20. apríl næstkomandi, og sýningarstjóri er Ægis Zita.
