Nýbakaðir meistarar unnu og Verona náði í dýrmæt stig í fallbaráttunni Smári Jökull Jónsson skrifar 7. maí 2023 20:55 Victor Osimhen hefur verið iðinn við kolann á tímabilinu. Vísir/Getty Nýbakaðir Ítalíumeistarar Napoli í knattspyrnu unnu sigur á Fiorentina í Serie A í dag. Eftir leik voru leikmenn hylltir af stuðningsmönnum liðsins.
Napoli tryggði sér titilinn í vikunni en liðið hefur haft mikla yfirburði í Serie A í vetur. Gríðarlega mikil fagnaðarlæti brutust út í Napolíborg enda þrjátíu og þrjú ár liðin síðan Napoli vann titilinn síðast. Í dag var liðið síðan komið aftur heim og þar hélt partýið áfram. Victor Osimhen, sem var einmitt hetja liðsins í vikunni, skoraði eina mark leiksins gegn Fiorentina í dag. Að leik loknum voru leikmenn hylltir og var mikið um dýrðir á Diego Maradona leikvanginum þegar þeir voru kallaðir upp á svið hver á fætur öðrum. Leikmenn Napoli voru hylltir eftir leik í dag.Vísir/Getty Juventus færðist nær sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð eftir 2-0 útisigur á Atalanta. Samuel Iling-Junior og Dusan Vlahovic skoruðu mörkin en Juventus situr í öðru sæti deildarinnar. Þórir Jóhann Helgason sat allan tímann á varamannabekk Lecce sem tapaði á heimavelli í mikilvægum leik gegn Verona. Verona eru nú með 30 stig, einu stigi á eftir Lecce en Spezia er í fallsæti með 27 stig. Þá gerðu Torinu og AC Monza 1-1 jafntefli í þýðingalitlum leik en bæði lið eru um miðja deild.
Ítalski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Sjá meira