Búa sig undir mikið fyllerí og ólæti Sindri Sverrisson skrifar 24. maí 2023 15:30 Stuðningsmenn West Ham þyrstir í titil og möguleiki er á slíkum í Prag 7. júní, í úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu. Getty/Charlotte Wilson Lögreglan í Tékklandi verður með fjölmennt lið til taks þegar stuðningsmenn West Ham og Fiorentina fara að streyma til höfuðborgarinnar, Prag, vegna úrslitaleiks Sambandsdeildar Evrópu.
Búist er við miklu fylleríi og mögulega ólátum í tengslum við leikinn en ljóst er að mikill fjöldi stuðningsmanna liðanna verður á leiknum, enda ekki á hverjum degi sem þessi lið eiga kost á að vinna Evrópukeppni. Þó að leikvangurinn í Prag taki bara við 19.000 áhorfendum er búist við því að tæplega 40.000 manns komi til borgarinnar vegna leiksins. Hvort félag fær þó aðeins 5.000 miða fyrir sína stuðningsmenn. Það er því ljóst að mikill fjöldi verður annars staðar í borginni að horfa á leikinn, og hætta á að upp úr sjóði á milli stuðningsmanna liðanna tveggja. Þess vegna hafa 10.000 lögreglumenn verið kallaðir til vegna leiksins, sem fram fer 7. júní. West Ham hefur ekki unnið stóran titil á þessari öld, eða frá því að félagið fagnaði sigri í Intertoto-keppninni árið 1999. Fiorentina hefur að sama skapi ekki unnið stóran titil síðan að liðið varð ítalskur bikarmeistari árið 2001, og eini titill liðsins í Evrópukeppni er frá árinu 1961, í Evrópukeppni bikarhafa.
Sambandsdeild Evrópu Enski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Í beinni: Real Madrid - Espanyol | Þurfa að halda í við sjóðheita Börsunga Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Ferguson saknar fótboltans Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Sjá meira