Ísland fer á HM í annað sinn Sindri Sverrisson skrifar 3. júlí 2023 11:04 Ísland tapaði fyrir Ungverjalandi í umspili um sæti á HM en komst bakdyraleiðina inn. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Íslenska kvennalandsliðið í handbolta var rétt í þessu að fá staðfest sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer á Norðurlöndum 29. nóvember til 17. desember.
Ísland og Austurríki fengu í dag síðustu tvö sætin sem í boði voru á mótinu, sérstök boðssæti (e. wild card) sem að IHF, alþjóða handknattleikssambandið, sér um að úthluta. Þetta verður í annað sinn sem að stelpurnar okkar spila á HM en þær voru einnig með á mótinu í Brasilíu árið 2011 og enduðu þá í 12. sæti. Íslenska landsliðið tapaði í umspili um HM-sæti gegn Ungverjalandi í apríl, samtals 59-49, en aðeins Austurríki tapaði með minni mun í umspilinu í Evrópu. Nú er orðið ljóst að þessar tvær þjóðir fá sæti á HM. HM fer fram í Danmörku, Noregi og Svíþjóð og verða þessar þjóðir í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla í Gautaborg á fimmtudaginn. Ísland og Austurríki verða í fjórða og neðsta styrkleikaflokki, sem einu Evrópuþjóðirnar þar. Hér að neðan má sjá styrkleikaflokkana. Styrkleikaflokkarnir fyrir HM-dráttinn á fimmtudaginn. Ísland er í fjórða og neðsta flokki.IHF Alls taka 32 þjóðir þátt á HM og verður spilað í átta fjögurra liða riðlum. Þrjú efstu liðin úr hverjum riðli komast áfram í milliriðla, og verða milliriðlarnir fjórir með samtals sex liðum í hverjum riðli. Tvö efstu liðin í hverjum milliriðli komast svo áfram í 8-liða úrslit.
Landslið kvenna í handbolta HM kvenna í handbolta 2023 Handbolti Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira