Vill finna fórnarlömb fingralangra flugvallarstarfsmanna Árni Sæberg skrifar 25. júlí 2023 21:48 Íslendingar þekkja mergir vel til á flugvellinum á Tenerife. DAVID BORRAT/EPA Harpa Rós Júlíusdóttir hefur undanfarið reynt að koma upplýsingum til lögreglunnar á Tenerife frá Íslendingum sem hafa lent í því að munum sé stolið úr töskum þeirra á flugvellinum. Nú hefur hún fengið afhentan lista yfir hundruð muna sem lögreglan hefur haldlagt og leitar logandi ljósi að eigendum þeirra. Harpa Rós Júlíusdóttir starfaði á flugvellinum á Tenerife í sjö ár en býr um þessar mundir á Íslandi. Hún segist hafa tekið fyrst eftir þessu vandamáli fyrir um þremur árum síðan. Hún þekkir starfsfólk flugvallarins vel, þar á meðal lögregluna. Hún ákvað í byrjun árs að setja sig í samband við gamlan vin í lögreglunni ytra til þess að reyna að stöðva öldu þjófnaðar úr töskum á flugvellinum. Í samtali við Vísi segir hún að hún hafi nánast verið búin að gefast upp á málinu vegna þess að fólk tilkynnti ekki tjón sitt og flugfélög neituðu að hjálpa kúnnum sínum. Tilkynning frá flugfélagi sé nefnilega forsenda þess að lögreglan geti hafið rannsókn. Skartgripir, myndavélar, símar og margt fleira Í dag urðu hins vegar vendingar í málinu þegar vinur Hörpu Rósar í lögreglunni setti sig í samband við hana að fyrrabragði. Hann lét hana fá lista af ætluðu þýfi sem lögreglan á Tenerife hefur haldlagt en getur með illu móti sannað að sé þýfi, þar sem fáar sem engar tilkynningar um þjófnað liggja fyrir. Því bað hann Hörpu Rós að hjálpa sér að ná til Íslendinga, sem hún og gerði með því að auglýsa eftir fórnarlömbum á Facebook-hópnum Tenerife tips. Sæl öllsömul, vinur minn í lögreglunni á Tenerife hefur sent mér myndir af hlutum og skartgripum sem hafa fundist í tengslum við þjófnaðinn úr töskum í farangursrými flugvallarins. Ég bið því fólk sem hefur lent í þessu, um að senda mér einkaskilaboð með lýsingu á því sem tekið var, í þeirri von um að hægt sé að koma þessu til skila til eiganda. Einnig bið ég fólk sem þekkir einhvern sem hefur lent í þessu, um að koma skilaboðunum áleiðis til þeirra. Harpa Rós segir að hún vilji hafa þennan háttinn á til þess að koma í veg fyrir að fólk segist eiga þýfi sem það á alls ekkert í. Hún leyfði blaðamanni að glugga í listann og í fljótu bragði virðast skartgripir vera um tvö hundruð, hið allra minnsta, og aðrir munir á borð við myndavélar, síma, leikjatölvur, heyrnartól, sólgleraugu og fleira um þrjú hundruð. Gagnrýnir aðgerðaleysi flugfélaganna Sem áður segir hefur þjófnaður úr töskum verið þekkt vandamál um nokkurt skeið á flugvellinum á Tenerife. Harpa Rós segist hafa fyrst heyrt af því fyrir um sex árum og að fyrir um þremur árum hafi Íslendingar farið að lenda í klóm fingralangra flugvallarstarfsmanna. Hún segir mikilvægt að þjófnaðurinn verði upprættur en það sé aðeins hægt með aðstoð flugfélaga. Lögreglan geti ekki hafið rannsókn á meintum þjófnaði eftir ábendingum hvers sem er, formlegar skýrslur þurfi frá því flugfélagi sem flutti töskuna, sem á að hafa verið stolið úr. Harpa Rós segir að fólk sem leitað hefur til hennar eftir aðstoð sé einróma um að það hafi lent á vegg hjá flugfélögunum tveimur íslensku, og fleirum sem flogið hafa til Tenerife. „Þess vegna getur þetta haldið áfram, af því það koma engar tilkynningar. Þetta kemur ekki inn á borð lögreglunnar,“ segir Harpa Rós. Þetta gagnrýnir hún harðlega og bendir á að fórnarlömb þjófanna séu í öllum tilvikum kúnnar flugfélaga, sem ættu því að bera boðin og búin að hjálpa til með því að rita skýrslu. Ferðalög Spánn Erlend sakamál Kanaríeyjar Tengdar fréttir Gripnir glóðvolgir við að stela úr tösku á Tenerife Tveir hlaðmenn á Reina Sofía flugvellinum á Tenerife hafa verið handteknir fyrir að stela úr tösku eins farþega. Íslendingar eru þó á því að fleiri hafi orðið fyrir barði þjófa á flugvellinum. 6. mars 2023 10:20 Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Fleiri fréttir Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Sjá meira
Harpa Rós Júlíusdóttir starfaði á flugvellinum á Tenerife í sjö ár en býr um þessar mundir á Íslandi. Hún segist hafa tekið fyrst eftir þessu vandamáli fyrir um þremur árum síðan. Hún þekkir starfsfólk flugvallarins vel, þar á meðal lögregluna. Hún ákvað í byrjun árs að setja sig í samband við gamlan vin í lögreglunni ytra til þess að reyna að stöðva öldu þjófnaðar úr töskum á flugvellinum. Í samtali við Vísi segir hún að hún hafi nánast verið búin að gefast upp á málinu vegna þess að fólk tilkynnti ekki tjón sitt og flugfélög neituðu að hjálpa kúnnum sínum. Tilkynning frá flugfélagi sé nefnilega forsenda þess að lögreglan geti hafið rannsókn. Skartgripir, myndavélar, símar og margt fleira Í dag urðu hins vegar vendingar í málinu þegar vinur Hörpu Rósar í lögreglunni setti sig í samband við hana að fyrrabragði. Hann lét hana fá lista af ætluðu þýfi sem lögreglan á Tenerife hefur haldlagt en getur með illu móti sannað að sé þýfi, þar sem fáar sem engar tilkynningar um þjófnað liggja fyrir. Því bað hann Hörpu Rós að hjálpa sér að ná til Íslendinga, sem hún og gerði með því að auglýsa eftir fórnarlömbum á Facebook-hópnum Tenerife tips. Sæl öllsömul, vinur minn í lögreglunni á Tenerife hefur sent mér myndir af hlutum og skartgripum sem hafa fundist í tengslum við þjófnaðinn úr töskum í farangursrými flugvallarins. Ég bið því fólk sem hefur lent í þessu, um að senda mér einkaskilaboð með lýsingu á því sem tekið var, í þeirri von um að hægt sé að koma þessu til skila til eiganda. Einnig bið ég fólk sem þekkir einhvern sem hefur lent í þessu, um að koma skilaboðunum áleiðis til þeirra. Harpa Rós segir að hún vilji hafa þennan háttinn á til þess að koma í veg fyrir að fólk segist eiga þýfi sem það á alls ekkert í. Hún leyfði blaðamanni að glugga í listann og í fljótu bragði virðast skartgripir vera um tvö hundruð, hið allra minnsta, og aðrir munir á borð við myndavélar, síma, leikjatölvur, heyrnartól, sólgleraugu og fleira um þrjú hundruð. Gagnrýnir aðgerðaleysi flugfélaganna Sem áður segir hefur þjófnaður úr töskum verið þekkt vandamál um nokkurt skeið á flugvellinum á Tenerife. Harpa Rós segist hafa fyrst heyrt af því fyrir um sex árum og að fyrir um þremur árum hafi Íslendingar farið að lenda í klóm fingralangra flugvallarstarfsmanna. Hún segir mikilvægt að þjófnaðurinn verði upprættur en það sé aðeins hægt með aðstoð flugfélaga. Lögreglan geti ekki hafið rannsókn á meintum þjófnaði eftir ábendingum hvers sem er, formlegar skýrslur þurfi frá því flugfélagi sem flutti töskuna, sem á að hafa verið stolið úr. Harpa Rós segir að fólk sem leitað hefur til hennar eftir aðstoð sé einróma um að það hafi lent á vegg hjá flugfélögunum tveimur íslensku, og fleirum sem flogið hafa til Tenerife. „Þess vegna getur þetta haldið áfram, af því það koma engar tilkynningar. Þetta kemur ekki inn á borð lögreglunnar,“ segir Harpa Rós. Þetta gagnrýnir hún harðlega og bendir á að fórnarlömb þjófanna séu í öllum tilvikum kúnnar flugfélaga, sem ættu því að bera boðin og búin að hjálpa til með því að rita skýrslu.
Sæl öllsömul, vinur minn í lögreglunni á Tenerife hefur sent mér myndir af hlutum og skartgripum sem hafa fundist í tengslum við þjófnaðinn úr töskum í farangursrými flugvallarins. Ég bið því fólk sem hefur lent í þessu, um að senda mér einkaskilaboð með lýsingu á því sem tekið var, í þeirri von um að hægt sé að koma þessu til skila til eiganda. Einnig bið ég fólk sem þekkir einhvern sem hefur lent í þessu, um að koma skilaboðunum áleiðis til þeirra.
Ferðalög Spánn Erlend sakamál Kanaríeyjar Tengdar fréttir Gripnir glóðvolgir við að stela úr tösku á Tenerife Tveir hlaðmenn á Reina Sofía flugvellinum á Tenerife hafa verið handteknir fyrir að stela úr tösku eins farþega. Íslendingar eru þó á því að fleiri hafi orðið fyrir barði þjófa á flugvellinum. 6. mars 2023 10:20 Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Fleiri fréttir Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Sjá meira
Gripnir glóðvolgir við að stela úr tösku á Tenerife Tveir hlaðmenn á Reina Sofía flugvellinum á Tenerife hafa verið handteknir fyrir að stela úr tösku eins farþega. Íslendingar eru þó á því að fleiri hafi orðið fyrir barði þjófa á flugvellinum. 6. mars 2023 10:20