Góðir dagar inn á milli í Langá Karl Lúðvíksson skrifar 26. júlí 2023 10:01 Nýgengnir laxar á land í Langá Mynd: KL Á dögum vatnsleysis í ánum á vestur og suðurlandi eru tvær ár sem þurfa líklega ekki að kvarta undan of litlu vatni en það eru Grímsá og Langá.
Þegar síðustu tölur voru birtar á vef Angling.is var veiðin í Langá 215 laxar og fannst mörgum það ískyggilega lágt og þá sérstaklega miðað við hvað það var mikið af laxi á svæðinu fyrir neðan Skugga og laxastigann. Það kom svo í ljós þegar að var gáð og vatnið tekið af laxastiganum og grjót lokaði að mestu rörinu við neðsta þrepið í stiganum svo það var einfaldlega þannig að laxinn komst með erfiðismunum í gegn. Ofan á þetta var teljarinn óvirkur og þess vegna engin leið að segja hvað gangan upp stigann er stór. Já þetta hljómar voða heppilega en þetta er engu að síður staðan. Tekist á við lax í Efri Kríutanga Í kjölfarið á því að stiginn var lagaður, ekki bara var grjótið fjarlægt heldur gert "V" í vegginn á neðsta þrepinu þá fór þessi lax sem var búinn að safnast upp fyrir neðan Skugga upp og það með nokkrum látum. Þetta var 19. júlí. Veiðin á svæðunum fyrir ofan var búin að vera róleg en breyttist mjög hratt. Undirritaður var til að mynda við leiðsögn og veiðar til 21. júlí í ánni og á tveimur vöktum lönduðu tvær stangir 13 löxum og misstu 6. Þetta varð síðan bara betra. 22. júlí eru bókaðir 32 laxar á land þann dag og veiðin komin úr 215 löxum upp í 336 laxa þegar að var gáð í morgun. Vikuveiðin er því komin í 126 laxa sem er bara virkilega góð vika. Freyja gætir veiðimanna við bakkann við Rennurnar. Það er engin að halda því fram að þetta verði eitthvað metár en það virðist vera meira af laxi í ánni en flestir áttu von á og áratugareynsla undirritaðs af ánni segir mér að hún gæti endað í 800-900 löxum sem er auðvitað minna en maður vill en í það minnsta ekki afleitt ár. Við erum ekki að fá annað 2014 í Langá......fjúkk!
Stangveiði Mest lesið Flottasta RISE hátíðin hingað til Veiði Flekkudalsá til SVFR Veiði Fyrsta hollið í Blöndu með 23 laxa Veiði Koma fyrstu laxarnir á land 5. júní? Veiði Bubbi lét húðflúra laxaflugu á handlegginn Veiði Sumarhátíð SVFR haldin næsta laugardag Veiði 243 laxar komnir á land í Selá Veiði Allar lokatölur komnar úr laxveiðiánum Veiði Mokveiði í Frostastaðavatni Veiði Miðfjarðará aflahæst sjálfbæru ánna Veiði