Húsið ekki samþykkt íbúðarhúsnæði og var á lista slökkviliðsins Magnús Jochum Pálsson, Bjarki Sigurðsson og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 20. ágúst 2023 17:46 Birgir Finnsson, starfandi slökkviliðsstjóri Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, segir slökkvistarf hafa gengið bærilega í dag. Vísir/Steingrímur Dúi Húsið sem brann við Hvaleyrarbraut var ekki samþykkt sem íbúðarhúsnæði og var á lista slökkviliðsins yfir húsnæði sem þyrfti að skoða betur. Sautján voru skráðir til heimilis í húsinu. Ekki er enn vitað hvernig eldur kviknaði í húsnæðinu.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út rétt fyrir klukkan eitt í dag vegna eldsvoða í iðnaðarhúsi á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði. Slökkvistarf hefur staðið yfir síðan þá og vinnur slökkviliðið nú að því að rífa húsið. Birgir Finnsson, starfandi slökkviliðsstjóri Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, sagði við fréttastofu að slökkvistarf hafi gengið bærilega þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Fjöldi viðbragðsaðila hefur komið að slökkvi- og björgunarstarfi við Hvaleyrarbraut í dag.Vísir/Steingrímur Dúi Hvað átti sér stað hérna í dag? „Við fengum tilkynningu um mikinn eld hér við Hvaleyrarbraut. Þegar við komum á staðinn er mikill eldur inni í miðju hússins og hann er mjög erfiður viðureignar, þetta er gamalt hús og margar einingar.“ Hvernig hefur slökkvistarf gengið? „Svona bærilega. Þetta er erfitt. Húsið er skipt upp og eldvarnarveggir eru ekki að hjálpa okkur. Aðkoman er þröng, þannig að það var erfitt að finna eldinn í upphafi,“ sagði Birgir. „Við einbeittum okkur að því að bjarga verðmætum. Hér voru töluverð verðmæti, sérstaklega fornbílar og búnaður sem þeim fylgir, sem samkvæmt eigendum er miklu verðmeiri en húsið. Þannig að við einbeittum okkur að því með þeim sem hér voru.“ Húsið ekki verið skoðað nýlega Búið er að koma öllum íbúum hússins út úr húsinu að því er slökkviliðið veit en húsið var ekki samþykkt íbúðarhúsnæði. Húsið var á lista slökkviliðsins yfir hús sem þyrfti að skoða betur en hafði ekki verið yfirfarið í þó nokkurn tíma. Var fólk inni þegar eldurinn kviknaði? „Já, hér var búseta. Þetta er eitt af þeim húsum þar sem er búseta í atvinnuhúsnæði. Við erum komin hér með Rauða krossinn og teljum okkur vera með þokkalegt yfirlit yfir þá sem voru hér í húsinu,“ sagði hann. „Það eru sjálfsagt fleiri íbúar, sem ekki er vitað um en við höfum fengið upplýsingar frá hinum íbúunum að þeir hafi ekki verið til staðar.“ Slökkvilið er byrjað að rífa þakið af húsinu og ætlar að reyna að bjarga öðrum helming þess.Vísir/Steingrímur Dúi Er þetta samþykkt íbúðarhúsnæði? „Atvinnuhúsnæði er ekki samþykkt. Þetta er eitt af þeim húsum sem eru á lista hjá okkur yfir að það þyrfti að fara að skoða betur,“ sagði hann. Þannig að það var ekki nýlega búið að fara yfir brunavarnir? „Nei, ekki í þessu húsnæði.“ Reyna að bjarga hluta hússins Næstu skref slökkviliðsins eru að taka húsið niður og reyna að bjarga öðrum hluta þess að sögn Birgis. Þið eruð byrjaðir að rífa niður þakið, hvað þýðir það eiginlega? „Þetta er bara orðið það hættulegt að við erum ekki að senda inn slökkviliðsmenn,“ sagði Birgir. „Ef við horfum á þetta sem eitt hús, þó þetta séu margar einingar, þá erum við að taka það í sundur og reyna að bjarga öðrum hlutanum. Við erum líka að reyna að losna við þennan reyk sem hér svífur yfir Hafnarfirði.“ Tveir slökkviliðsmenn fylgjast með krabbanum rífa þakið af húsinu.Vísir/Steingrímur Dúi Er vitað hvað hefur verið að brenna og valdið þessum reyk? „Nei, hér er allskyns starfsemi og allskyns hlutir, sjálfsagt dekk og gúmmí, olíur og bensín. Það er bara eins og gengur í svona húsnæði,“ sagði hann. Hver eru næstu skref í slökkvistarfinu? „Næstu skref eru bara núna að halda áfram þessari vinnu með krabbann. Rjúfa húsið í tvennt og reyna þá að slökkva í öðrum hlutanum. En því miður held ég að hinn hlutinn, að næsta verkefni krabbans verði að færa sig þangað svo að við náum að koma vatni á eldinn,“ sagði Birgir. Hefur ekki tölu yfir viðbragðsaðila Fjöldi fólks er á svæðinu við brunann, bæði fjöldi viðbragðsaðila og almennra borgara. Birgir segir að illa hafi gengið að loka svæðinu. Ekki er enn vitað hvernig eldurinn kviknaði. Ertu með tölu yfir viðbragðsaðila hér á svæðinu? „Nei, ég hef ekki náð yfirsýn yfir það. Við erum búnir að hringja út allt slökkviliðið, lögreglan er búin að vera hér, Rauði krossinn. Við höfum fengið mikla aðstoð hér frá þeim sem eru í húsnæðinu í kring, með lyftara og tæki, þannig að þetta er hellings mannskapur,“ sagði Birgir. Gríðarlegan, svartan reyk leggur upp frá húsnæðinu. Vísir/Kristín Hér inni á svæðinu, hefur verið og er enn fullt af fólki sem eru ekki viðbragðsaðilar, er þetta fólk sem tengist húsnæðinu á einn eða annan hátt? „Ég hef ekki tölu á því en við vorum í vandræðum. Þetta er víðfeðmt svæði og það gekk brösuglega að tryggja lokanir. En það eru mjög margir hér sem hafa tengsl við þetta hús, það skiptist í margar einingar, svo það eru margir hér sem hafa haft einhvern aðgang að húsinu,“ sagði hann. Vitið þið hvað gerðist, hvernig eldurinn kviknaði? „Nei, ekki á þessu stigi. Við vitum ekki neitt,“ sagði Birgir Finnsson, starfandi slökkviliðsstjóri Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.
Slökkvilið Hafnarfjörður Bruni á Hvaleyrarbraut Mest lesið Þetta fær Hildur í laun Innlent Samþykkja 3,5 prósenta launahækkun Innlent Skaðinn sem þau hafi þurft að þola „óásættanlegur með öllu“ Innlent Keyrði rútu á 20 km/klst frá BSÍ í Hafnarfjörð: „Kannski á ég eftir að fá símtöl“ Innlent Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Innlent „Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu” Innlent Kannaðist við að hafa ekið á níu ára stúlku og stungið af Innlent Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Erlent Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Erlent Trump enn ekki svarað fundarbeiðni Kristrúnar Innlent Fleiri fréttir Gríðarlegt safn bóka fannst við tiltekt í Valhöll Óvissa með haustið en sér nú vonarglætu Keyrði rútu á 20 km/klst frá BSÍ í Hafnarfjörð: „Kannski á ég eftir að fá símtöl“ Hvalbátarnir halda á veiðar undir helgina Kannaðist við að hafa ekið á níu ára stúlku og stungið af Áhyggjufullir ferðalangar, sólbrunnin þjóð og sögulegt sund í beinni Gluggagægir flúinn þegar lögreglu bar að garði Minniháttar röskun gæti haft alvarlegar afleiðingar Hótaði að drepa konu og hundinn hennar Skaðinn sem þau hafi þurft að þola „óásættanlegur með öllu“ Skar kindur á háls án þess að svipta þær meðvitund fyrst Þórdís Lóa ráðin framkvæmdastjóri Félagsbústaða Hvetja fólk til að gerast gjafar: „Það er alltaf pláss fyrir fleiri gæðablóð“ „Við getum ekki framkvæmt rauneftirlit á dagvinnutíma“ Baráttan um 17. júní Samþykkja 3,5 prósenta launahækkun Þetta fær Hildur í laun Vill sjá reglur um samfélagsmiðla sem fyrst „Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu” Íslenskar vefsíður í vandræðum vegna bilunar í ljósleiðarakerfinu „Í góðu lagi að gefa henni orðið núna“ Engin þörf á aukaþingi í ágúst og veitingamenn ósáttir með vinnubrögð lögreglu Trump enn ekki svarað fundarbeiðni Kristrúnar Rændur á víðavangi vegna fíkniefnaskuldar Hefja borun rannsóknarholu á Landeyjasandi í vikunni Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Sjöunda björgunarskipið komið til heimahafnar Þingmenn á síðustu metrunum Vopnað rán í Reykjavík Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Sjá meira