Innkalla ÅSKSTORM-hleðslutæki vegna hættu á rafstuði og bruna Atli Ísleifsson skrifar 10. janúar 2024 10:25 Hleðslutækið sem um ræðir. IKEA IKEA hefur innkallað ÅSKSTORM 40 W USB-hleðslutæki vegna hættu á rafstuði og bruna.
Í tilkynningu frá IKEA eru viðskiptavinir sem eigi dökkgrátt ÅSKSTORM 40 W USB-hleðslutæki með vörunúmerinu 50461193, hvattir til að taka það úr umferð og skila í IKEA þar sem það verði að fullu endurgreitt. „Öryggi er alltaf efst á forgangslista IKEA og því hefur verið ákveðið að innkalla ÅSKSTORM 40 W USB-hleðslutæki í dökkgráu þar sem hætta á rafstuði og bruna getur skapast þegar rafmagnssnúran fer að slitna vegna notkunar. Við vöruþróun notast IKEA við strangt áhættumat og prófanir til að tryggja að vörur okkar standist öll gildandi lög og staðla á þeim mörkuðum þar sem þær eru seldar. Þrátt fyrir þessar öryggisprófanir höfum við fengið upplýsingar um að rafmagnssnúran á dökkgráa ÅSKSTORM 40 W USB-hleðslutækinu geti skemmst eða slitnað eftir að hafa verið vafin utan um hleðslutækið eða sveigð fram og til baka eftir mikla notkun. Skemmdir á snúrunni geta leitt til rafstuðs og bruna. Því er dökkgráa ÅSKSTORM 40 W USB-hleðslutækið innkallað. Hægt er að þekkja þetta tiltekna ÅSKSTORM USB-hleðslutæki á tegundarnúmerinu ICPSW5-40-1 sem er á miðanum aftan á því. Hægt er að skila dökkgráa ÅSKSTORM 40 W USB-hleðslutækinu í IKEA verslunina og fá það endurgreitt að fullu. Kvittun er ekki skilyrði fyrir endurgreiðslu. Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustuveri í síma 520 2500 og á IKEA.is. IKEA biðst velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í tilkynningunni.
IKEA Innköllun Mest lesið Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira