Miðaldra reka lestina í framtalsskilum Lovísa Arnardóttir skrifar 14. mars 2024 11:55 Frestur til að skila skattframtali einstaklinga rennur formlega út í dag. Vísir/Vilhelm Alls voru um 63,2 prósent búin að skila skattframtali í morgun. Frestur til að skila rennur formlega út í dag en þó er svigrúm til um og eftir helgarinnar til að klára skilin. Af þeim sem eru búin að skila standa þau sig best sem eru í yngstu og elstu aldurshópunum. „
Það er frekar jafnt eftir aldri, en yngstu og elstu standa sig best,“ segir Jónas Magnússon sérfræðingur í fag- og fræðslumálum hjá Skattinum. Hæst er hlutfallið í aldurshópi 86 til 95 ára en 68,9 prósent þeirra eru búin að skila. Af þeim sem eru 16 til 25 ára eru 67,9 prósent búin að skila. Lægst er hlutfallið hjá aldurshópi 46 til 55 ára en 58,7 prósent þeirra eru búin að skila. Hann segir að mjög hafi fjölgað í gærkvöldi og það hafi haldið áfram í dag. Í gær voru 56 prósent búin að skila en 63 prósent í morgun. Hann á von á því að mikil fjölgun verði í dag og í kvöld en búist er við fleiri framtölum en nokkru sinni fyrr því töluverð fjölgun hefur verið á skrá á milli ára. Mikil fjölgun á milli ára Í fyrra áttu alls að skila 332 þúsund en í ár eru það 343 þúsund og er því fjölgun um 12 þúsund einstaklinga á skrá. Skatturinn á von á því að allt að 75 prósent verði búin að skila á morgun. Skilin voru í gær betri en þau voru á sama tíma fyrir ári síðan. „Fyrir flesta er þetta auðvelt verk. Það er allt forskráð og segir sig nánast sjálf,“ segir Jónas og að helst hafi fólk verið að lenda í vandræðum hafi það verið í hlutabréfakaupum. Því hafi verið gerðar sérstakar leiðbeiningar um það sem hægt er að kynna sér hér. Þar eru einnig leiðbeiningar fyrir þau sem hafa verið í verktakavinnu. Margir munu eflaust setjast fyrir framan tölvuna í kvöld til að skila framtalinu. Mynd/Skatturinn En hafi fólk einhverjar spurningar um skil framtalsins er hægt að leita til Skattsins og fá leiðbeiningar. Hægt er að senda email á framtal@skatturinn.is, tala við spjallmenni eða hringja í síma 442-1414 til klukkan 15.30 í dag. Jónas segir að mikið hafi verið hringt síðustu daga en alls hefur Skatturinn tekið við um þrettán þúsund símtölum síðasta mánuðinn vegna framtalsskilanna. „Það er mikið spurt um hlutabréfakaup en líka um ívilnanir vegna barna á framhaldsskólaaldri og um verktakatekjurnar.“ Vesen að skila ekki á réttum tíma „Við höldum áfram að veita framtalsaðstoð fram í næstu viku. Ef þú getur ekki skilað í dag þá er mikilvægt að skila eins fljótt og fólk getur,“ segir Jónas en tekur þó skýrt fram að ef fólk skilar ekki á næstu dögum geti það lent í því að fá áætlun. „Það er aðallega bara vesen. Þá getur fólk lent í skuld og þarf að borga inn á það á meðan það bíður eftir raunverulegri niðurstöðu. Það er því best að skila á réttum tíma til að forðast það,“ segir Jónas og að fólk geti þá þurft að bíða þar til í haust með að fá niðurstöðu í sín mál. „Það er best að drífa þetta af. Þetta er auðvelt og þetta er gaman,“ segir Jónas. Þegar fólk er búið að skila inn framtalinu þá fær það bráðabirgðaútreikning á sinni álagningu sem Jónas segir að standist yfirleitt. Lokaniðurstaðan liggur þó ekki fyrir fyrr en í lok maí. „Margir fá bráðabirgðaútreikning, og hjá flestum sem eru með einföld framtöl, er hann nokkuð áreiðanlegur.“ Hægt er að skila framtalinu hér.
Skattar og tollar Tengdar fréttir Lokadagurinn til að skila skattframtali Einstaklingar hafa frest til miðnættis til að skila inn skattframtali sínu til Skattsins. Ekki verður hægt að sækja um frest til að skila framtali. 14. mars 2023 13:50 Mörgum þyki ferlið kvíðavaldandi Á morgun mun lögfræðiþjónusta laganema við Háskólann í Reykjavík í samstarfi við VIRTUS bjóða fólki upp á endurgjaldslausa aðstoð við gerð skattframtala. Laganemi sem stendur vaktina á morgun segir að mörgum þyki bæði kvíðavaldandi og flókið að skila framtalinu með fréttum hætti. 10. mars 2023 14:00 Ekki skrýtið að fólk sé hrætt við skattframtalið Lögmaður með sérþekkingu á sviði skattalöggjafar segir það ekki vera skrýtið að fólk sé hrætt við skattframtalið. Lagaumhverfið á sviðinu vefjist jafnvel fyrir færustu lögmönnum. Hún segir mikilvægt að fólk fari vel yfir framtalið og fer yfir það helsta sem þarf að hafa í huga þegar það er gert. 8. mars 2023 15:07 Mest lesið „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Viðskipti erlent Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Viðskipti innlent Þessi eru tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna Viðskipti Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Viðskipti innlent Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Viðskipti innlent Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Samstarf Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Sjá meira
Lokadagurinn til að skila skattframtali Einstaklingar hafa frest til miðnættis til að skila inn skattframtali sínu til Skattsins. Ekki verður hægt að sækja um frest til að skila framtali. 14. mars 2023 13:50
Mörgum þyki ferlið kvíðavaldandi Á morgun mun lögfræðiþjónusta laganema við Háskólann í Reykjavík í samstarfi við VIRTUS bjóða fólki upp á endurgjaldslausa aðstoð við gerð skattframtala. Laganemi sem stendur vaktina á morgun segir að mörgum þyki bæði kvíðavaldandi og flókið að skila framtalinu með fréttum hætti. 10. mars 2023 14:00
Ekki skrýtið að fólk sé hrætt við skattframtalið Lögmaður með sérþekkingu á sviði skattalöggjafar segir það ekki vera skrýtið að fólk sé hrætt við skattframtalið. Lagaumhverfið á sviðinu vefjist jafnvel fyrir færustu lögmönnum. Hún segir mikilvægt að fólk fari vel yfir framtalið og fer yfir það helsta sem þarf að hafa í huga þegar það er gert. 8. mars 2023 15:07