Innlent

Á­höfn segl­skútu lýsti yfir neyðar­á­standi í hvass­viðri

Eiður Þór Árnason skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til baka þegar ljóst var að neyðarástand var afstaðið.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til baka þegar ljóst var að neyðarástand var afstaðið. Vísir/vilhelm

Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Ísafirði og Bolungarvík voru kölluð út á fjórða tímanum í dag þegar áhöfn seglskútu tilkynnti að hún væri stjórnvana skammt undan Straumnesi á Vestfjörðum.

Fjórir voru um borð í skútunni og voru slæmar aðstæður á vettvangi vegna hvassviðris og sjólags, að sögð Landhelgisgæslunnar. Skútan hafði verið í togi hjá öðrum báti en dráttartaugin slitnaði vegna slæms sjólags og tókst ekki að tengja dráttartaugina á milli skipanna aftur. Áhöfn skútunnar dró þá upp segl og reyndi að sigla í skjól en þá gaf stýri skútunnar sig og varð hún því stjórnvana. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gæslunni en skútan var þá um eina sjómílu norður af Straumnesi. Einnig var óskað eftir aðstoð nálægra skipa og báta en á vettvangi var hvöss norðaustanátt. Þar sem straumur féll á móti vindi var kröpp alda og aðstæður erfiðar. Skútuna rak til suðvesturs en ekki að landi.

Að sögn Landhelgisgæslunnar tókst áhöfn skútunnar að setja út neyðarstýri og gat því siglt skútunni undir seglum inn á Aðalvík í skjól. Um svipað leyti hafi fiskeldisþjónustuskipið Fosnakongen og björgunarskipið Gísli Jóns komið á vettvang en ekki verið þörf á aðstoð þeirra þegar þarna var komið. Þyrlu Gæslunnar var þá snúið við þegar ljóst var að hættuástand var yfirstaðið.

Til stendur að sigla skútunni undir seglum inn fyrir Rit þar sem dráttartaug verður tengd að nýju við dráttarskipið og munu skipin síðan halda til hafnar á Ísafirði.


Tengdar fréttir

Stjórnvana skúta sendi neyðarboð

Landhelgisgæslan sinnir nú útkalli vegna vélarvana eða stjórnvana báts vestan af landinu. Þyrla gæslunnar heldur nú að bátnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×