Veður

Gular við­varanir og versnandi aksturs­skil­yrði

Eiður Þór Árnason skrifar
Vorið er ekki farið að minna á sig í öllum landshlutum.
Vorið er ekki farið að minna á sig í öllum landshlutum. vísir/vilhelm

Spáð er nokkuð hvassri norðan- og norðaustanátt í dag, víða 13 til 20 metrum á sekúndu og snjókomu eða él, einkum á Norður- og Austurlandi þar sem gul viðvörun verður í gildi. Þurrt að kalla sunnan heiða og bjart veður fram eftir degi, en lítilsháttar snjókoma þar í kvöld. Frost 0 til 6 stig, en frostlaust yfir daginn syðst.

Norðaustan 10 til 18 metrar á sekúndu og él á morgun, en léttskýjað sunnan- og suðvestanlands. Hiti breytist lítið. Hægari vindur og bjart veður á þriðjudag, en dálítil él austast.

Gul viðvörun vegna norðaustan hríðar gildir á Norðurlandi eystra, Ströndum og Norðurlandi vestra og Austurlandi að Glettingi í allan dag frá klukkan 8 um morgun og fram yfir miðnætti. Þá tekur gul viðvörun gildi á Austfjörðum klukkan 16. Búast má við 13 til 20 metrum á sekúndu, talsverðri snjókomu með skafrenningi, lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum.

Nokkuð er um ófærð á vegum nú í morgunsárið og er til að mynda Víkurskarð, Öxnadalsheiði, Þverárfjall, Vopnafjarðarheiði og Fjarðarheiði lokuð samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en staðan verður endurmetin þegar líður á daginn.

Veðurviðvaranir hafa verið gefnar út á Norður- og Austurlandi.Veðurstofa Íslands

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag:

Norðaustan 8-15 m/s og él norðan- og austanlands, en léttskýjað suðvestantil. Frost 0 til 7 stig.

Á þriðjudag:

Minnkandi norðaustanátt og bjart að mestu, en skýjað á Norðaustur- og Austurlandi og dálítil él framan af degi. Frost 0 til 7 stig og kólnar meira um kvöldið.

Á miðvikudag:

Hæg breytileg átt, bjart veður og kalt en frostlaust syðst yfir hádaginn.

Á fimmtudag:

Austlæg átt og líkur á slyddu eða snjókomu sunnantil, en þurrt norðan heiða. Frost 0 til 7 stig, en hiti 0 til 5 stig sunnan- og suðvestanlands að deginum.

Á föstudag og laugardag:

Útlit fyrir norðaustlæga átt með dálitlum éljum á víð og dreif. Hiti breytist lítið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×