Bjarki og félagar sex stigum frá titlinum eftir stórsigur Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 6. apríl 2024 16:44 Bjarki Már Elísson skoraði tvö mörk fyrir Telekom Veszprém í dag. EPA-EFE/Tibor Illyes HUNGARY OUT Bjarki Már Elísson og félagar hans í Telekom Veszprém eru aðeins þremur sigrum frá því að tryggja sér ungverska meistaratitilinn í handbolta eftir 13 marka stórsigur gegn Budakalasz í dag, 30-43.
Gestirnir í Veszprém höfðu stjórn á leiknum frá upphafi til enda og yfirburðir þeirra í fyrri hálfleik voru í raun ótrúlegir. Veszprém náði tíu marka forskoti um miðjan fyrri hálfleik og liðið skoraði 26 mörk gegn 13 mörkum heimamanna áður en hálfleikshléið gekk í garð. Gestirnir gátu því leyft sér að gefa örlítið eftir í síðari hálfleik þar sem meira jafnræði var með liðunum. Mest náði Veszprém 17 marka forskoti og sigur þeirra var aldrei í hættu. Lokatölur 30-43. Bjarki Már skoraði tvö mörk fyrir Veszprém í dag, en liðið trónir á toppi ungversku deildarinnar með fullt hús stiga eftir 21 leik. Liðið er með átta stiga forskot á Pick Szeged sem situr í öðru sæti, en Szeged á tvo leiki til góða. Nú þegar styttist í annan endann á mótinu nægir Veszprém að vinna þrjá af sínum síðustu fimm leikjum til að tryggja sér ungverska titilinn.
Ungverski handboltinn Mest lesið Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið Íslenski boltinn „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Greenwood fékk annað tækifæri en ekki sonur minn“ Fótbolti „Það er æfing á morgun“ Íslenski boltinn Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ Enski boltinn „Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn á sviðið Sport „Eitt mesta ofbeldi í sögu fótboltans“ Fótbolti Sló Íslandsmetið í sleggjukasti Sport Fleiri fréttir Stjarnan er meistari meistaranna „Magnað að við séum enn að leita í vinskap hvors annars“ Með krabbamein í brjósti en hættir ekki að spila „Upplifi þetta mál sem fjölskylduharmleik“ Misstu Egypta fram úr sér í seinni hálfleik ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Unnu Ungverja og spila við heimamenn um fimmta sætið á HM Kári Kristján spilar aldrei aftur fyrir ÍBV Sárt tap gegn Dönum á HM Viktor Gísli fær treyju númer eitt hjá Barcelona Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Slóvenskt undrabarn skoraði 23 mörk gegn Noregi Tap setur Ísland í erfiða stöðu Stelpurnar unnu Noreg á EM og tryggðu sér sautjánda sætið Strákarnir unnu Brassa og fóru áfram með fullt hús Leika um 17. sætið á EM eftir sigur á Austurríki Ágúst Elí leysir af Landin hjá besta liði landsins Leðurblökur að trufla handboltafélag Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Sjá meira