Tjúttandi tenór og rappari í Garðheimum Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 9. apríl 2024 10:14 Garðar Thor og Herra Hnetusmjör nutu lífsins um helgina. Það er sól á lofti svo gott sem alla daga en kalt í lofti og rok í kinnum. Það er hinsvegar hiti í blóðinu og hækkandi sól þýðir að það hefur aldrei verið eins mikið að gerast í samkvæmislífi landans.
Fjörið hófst strax á fimmtudagskvöldið þar sem góðmennt var á tónleikum Ljóta kórs í Gamla bíó. Sjálfur stuðmaðurinn Valgeir Guðjónsson mætti og þar voru líka Baldur Þórhallsson og Felix Bergsson sem hafa svo gott sem látið sjá sig á öllum viðburðum landsins eftir að hafa tilkynnt um forsetaframboð. Grímur Grímsson lögreglumaður var öllu rólegri en sinnti greinilega húsverkum um helgina því hann var mættur í Húsasmiðjuna strax á föstudaginn til þess að skoða verkfæri. Arnar Grant og Vítalía nýttu fimmtudaginn í innkaup fyrir helgina í Bónus í Kauptúni. Föstudaginn var svo sannkallað líf og fjör í miðborg Reykjavíkur líkt og flesta föstudaga. Helga Arnardóttir fjölmiðlakona sást á röltinu á kvöldverðartíma en hljómsveitarmeðlimirnir í Vök nutu lífsins á Forréttabarnum. Bríet fékk sér taílenskt á Ban thai á meðan Ásdís Rán forsetaframbjóðandi skellti sér á tónleika í Iðnó til að berja tónlistarmann þjóðarinnar Kristmund Axel augum. Það var eitthvað í loftinu þetta kvöld því söngleikjaparið Garðar Thór Cortes tenór með meiru og Vala Guðna voru mætt á skemmtistaðinn Röntgen í miðborginni. Þau voru þar í góðum hópi fólks og gleðin allsráðandi. Á sama tíma var svo leiftrandi stemning hinumegin við götuna í Gamla bíó þar sem Úlfur Úlfur var með útgáfutónleika. Sigtryggur Arnar Björnsson og Þórir Þorbjarnarson, miklu þekktari sem Tóti túrbó nutu þar lífsins og líka Rúrik Gíslason fyrirsæta og athafnamaður. Landsliðið í tónlist kom svo fram með sveitinni á sviði Emmsjé Gauti, Herra Hnetusmjör,Birnir, Kött grá Pje komu allir fram og Salka Sól Eyfeld studdi sinn mann í Úlfi Úlfi að sjálfsögðu með geggjuðum söngi. Laugardaginn var svo ekki minna um að vera. Það var stjörnufans á Suðurlandi þar sem annar hver maður virtist vera mættur. Á Selfossi voru til að mynda mætt í Krónuna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir alþjóðastjarna Íslands, líka Egill Ploder útvarpsmaður og Birgir Örn Magnússon Idolstjarna. Þau voru þó ekki saman þó ótrúlegt megi virðast. Í borginni var líka nóg um að vera á laugardeginum. Þar verslaði fjölmiðlakonan Lóa Pind sér í matinn í Bónus í Skipholti. Lil Curly naut lífsins á meðan í steinapottinum í Laugardalslaug en Herra Hnetusmjör fékk fér að borða á Spírunni í Garðheimum. Lil Curly var ekki sá eini sem skellti sér í pottinn því sjálfur Ritstjórinn, Snorri Másson, slakaði á í kalda pottinum af öllum stöðum í Neslauginni. Þetta kvöld ætlaði svo allt að koll um keyra í stjörnuorku í afmæli Ebbu Katrínar Finnsdóttur leikkonu í Hafnarfirði. Þar voru mættar nánast allar stjörnur landsins enda flygill í húsinu og eins og gefur að skilja var mikið sungið og spilað. Söngkonan Bríet, þingdrottningin Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, kvikmyndaframleiðandinn Rakel Garðarsdóttir og líka Katla Njálsdóttir söng-og leikkona voru þar mættar í hópsöngi. Svo má ekki sofa á Kristni Óla, sjálfum Króla, sem lét sig ekki vanta. Svona á lífið að vera.
Frægir á ferð Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Kát á kynfræðslukarnivali Menning Fleiri fréttir „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Sjá meira