Fótbolti

Leið­rétting löngu eftir EM: Þetta hefði átt að vera víti

Sindri Sverrisson skrifar
Jamal Musiala skaut boltanum að marki Spánar en Marc Cucurella stöðvaði skotið með hendi. Spánverjar sluppu með skrekkinn og enduðu á að verða Evrópumeistarar.
Jamal Musiala skaut boltanum að marki Spánar en Marc Cucurella stöðvaði skotið með hendi. Spánverjar sluppu með skrekkinn og enduðu á að verða Evrópumeistarar. Getty/Tom Weller

Þjóðverjar geta nú haldið áfram að svekkja sig á því hvernig fór fyrir þeim á Evrópumótinu í fótbolta á heimavelli í sumar, því þeir áttu svo sannarlega að fá vítaspyrnu í leiknum við Spán í 8-liða úrslitum.

Margir, og þá sérstaklega Þjóðverjar, muna eflaust enn eftir atvikinu í framlengingu leiksins þegar Marc Cucurella, bakvörður Spánar, fékk skot Jamals Musiala í höndina innan teigs.

Enski dómarinn Anthony Taylor dæmdi ekkert og kollegar hans sem sinntu myndbandsdómgæslu ákváðu sömuleiðis að grípa ekki inn í.

Þetta gerðist á 107. mínútu, í stöðunni 1-1, en í stað þess að Þýskaland fengi víti og gullið tækifæri til að komast yfir þá vann Spánn 2-1 með marki Mikels Merino á lokamínútu framlengingarinnar. Spánverjar enduðu svo á að verða Evrópumeistarar.

Ákvörðun Taylors var vægast sagt umdeild, enda Cucurella með höndina nokkuð frá líkamanum þegar skot Musiala hæfði hana, og núna hefur dómaranefnd UEFA viðurkennt að dæma hefði átt vítaspyrnu.

Höndin of langt frá búknum

Spænski miðillinn Relevo greinir frá þessu og segir að dómaranefndin vegi reglulega og meti dóma í leikjum, til að stuðla að auknu samræmi í dómgæslu í Evrópu.

Eftirlitsmaðurinn Roberto Rosetti segir í áliti til nefndarinnar: „Samkvæmt nýjustu viðmiðum UEFA ætti að taka strangar á því þegar skot eru stöðvuð með hendi, nema að höndin sé mjög nálægt eða snerti búkinn. Í þessu tilviki var höndin sem stöðvaði skotið ekki mjög nálægt búknum, og þannig gerði varnarmaðurinn sig stærri, svo að það hefði átt að dæma víti.“

Tveir og hálfur mánuður eru síðan að leikurinn fór fram og því ekkert sem að Þjóðverjar geta gert úr þessu annað en að svekkja sig á orðnum hlut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×