Innlent

Búið að opna fyrir til­nefningar til manns ársins 2024

Boði Logason skrifar
Búið er að opna fyrir tilnefningar fyrir Mann ársins árið 2024.
Búið er að opna fyrir tilnefningar fyrir Mann ársins árið 2024. Vísir/Vilhelm

Lesendum Vísis og hlustendum Bylgjunnar gefst færi á að útnefna mann ársins 2024 nú um áramótin. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar og er öllum frjálst að senda inn.

Tekið er við tilnefningum hér á Vísi en frestur til að tilnefna rennur út föstudaginn 13. desember klukkan 12:00.

Ritstjórn Vísis og Reykjavík síðdegis fara sameiginlega yfir innsendar tilnefningar og í kjölfarið hefst atkvæðagreiðsla. Manneskjan sem verður fyrir valinu verða heiðruð í árlegum áramótaþætti Reykjavík árdegis á gamlársdag.

Í tilnefningunni þarf nafn viðkomandi að koma fram auk upplýsinga um hvers vegna viðkomandi á skilið að vera útnefndur sem maður ársins 2024.

Farið verður yfir tilnefningar með tilliti til rökstuðnings og fjölda tilnefninga sem hver og einn fær.

Atkvæðagreiðsla fer svo fram á Vísi yfir jólin.

Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík var valinn maður ársins í fyrra. Hátt í 30 þúsund atkvæði bárust í kosningunni.

Ritstjórn Vísis mun nú fara yfir tilnefningarnar og kosning hefst um jólin.

Að neðan má sjá þá sem hafa hlotið titilinn síðustu fimmtán ár.

  • 2009 Edda Heiðrún Backman
  • 2010 Þórður Guðnason
  • 2011 Mugison
  • 2012 Eiríkur Ingi Jóhannsson
  • 2013 Heilbrigðisstarfsmaðurinn
  • 2014 Tómas Guðbjartsson
  • 2015 Þröstur Leó Gunnarsson
  • 2016 Karlalandsliðið í knattspyrnu
  • 2017 Grímur Grímsson
  • 2018 Bára Halldórsdóttir
  • 2019 Björgunarsveitarmaðurinn
  • 2020 Heilbrigðisstarfsmaðurinn
  • 2021 Guðmundur Felix Grétarsson
  • 2022 Haraldur Ingi Þorleifsson
  • 2023 Fannar Jónasson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×