Handbolti

Sjöunda tap ÍBV í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Perla Ruth Albertsdóttir var markahæst á vellinum með átta mörk.
Perla Ruth Albertsdóttir var markahæst á vellinum með átta mörk. vísir/viktor freyr

Selfoss tryggði sér sigur á ÍBV, 24-22, með því að skora tvö síðustu mörkin í leik liðanna í Olís deild kvenna í dag. Þetta var sjöunda tap Eyjakvenna í röð.

ÍBV var sterkari framan af og var fimm mörkum yfir í hálfleik, 7-12. Selfoss byrjaði seinni hálfleikinn af krafti, skoraði sex af fyrstu sjö mörkum hans og jafnaði í 13-13.

Leikurinn var svo gríðarlega spennandi allt til loka. Sunna Jónsdóttir jafnaði fyrir ÍBV, 22-22, þegar þrjár mínútur voru eftir.

Selfyssingar unnu þessar þrjár mínútur hins vegar, 2-0, og tryggðu sér stigin tvö. Lokatölur 24-22, heimakonum í vil.

Perla Ruth Albertsdóttir skoraði átta mörk fyrir Selfoss og Sara Dröfn Ríkharðsdóttir fjögur. Ágústa Tanja Jóhannsdóttir varði fimmtán skot í marki Selfyssinga sem eru í 4. sæti deildarinnar með ellefu stig.

Sunna var markahæst Eyjakvenna með sex mörk og Britney Cots skoraði fimm.


Tengdar fréttir

Stjörnukonur komnar í gang

Stjarnan vann þriggja marka sigur á Gróttu, 31-28, í Olís deild kvenna í dag. Þetta var annar sigur Garðbæinga í röð og þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×