Lífið

Guð­laugur og Anný Rós keyptu ein­býli í Garða­bæ

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Anný Rós og Guðlaugur opinberuðu samband sitt á samfélagsmiðlum um áramótin.
Anný Rós og Guðlaugur opinberuðu samband sitt á samfélagsmiðlum um áramótin.

Anný Rós Guðmundsdóttir öldrunarlæknir og Guðlaugur Ingi Guðlaugsson fasteignasali hjá Eignamiðlun hafa fest kaup á einbýlishúsi við Markarflöt í Garðabæ. Parið opinberaði samband sitt á samfélagsmiðlum um áramótin og virðist lífið leika við þau.

Anný og Guðlaugur fengu húsið afhent þann 20. desember síðastliðinn og greiddu 200 milljónir fyrir. 

Um er að ræða 240 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum sem var byggt árið 1969 og teiknað af Kjartani Sveinssyni.

Húsið hefur verið mikið endurnýjað og er allt hið glæsilegasta.

Stofa, borðstofa og eldhús er samliggjandi í rúmgóðu rými með stórum gluggum. Þaðan er útgengt á timburverönd sem snýr í suðvestur. Eldhúsið er búið hvítri innréttingu með góðu skápa- og vinnuplássi, og náttúrustein á borðum. Samtals eru fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi. 

Guðlaugur var áður í sambandi með Írisi Ósk Valþórsdóttur vörumerkjastjóra hjá Vaxa. Anný Rós var áður í sambandi með Gottskálki Gizurarsyni hjartalækni.

Guðlaugur hefur starfað hjá Eignamiðlun frá 2013 og sem fasteignasali frá árinu 2005. Anný Rós starfar hjá Húðlæknastöðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.