Lífið

Ítalskur heilafúi dreifir sér um heims­byggðina

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Nokkrar af þekktustu kynjaverum ítalska heilafúans: fílakaktusinn Larili Larila, krókódílasprengjuflugvélin Bombardillo Coccodrillo, Brr Brr Patapim, Tung Tung Tung Shahur og hvítháfurinn Tralalero Tralala.
Nokkrar af þekktustu kynjaverum ítalska heilafúans: fílakaktusinn Larili Larila, krókódílasprengjuflugvélin Bombardillo Coccodrillo, Brr Brr Patapim, Tung Tung Tung Shahur og hvítháfurinn Tralalero Tralala.

Ítalskur heilafúi er nýjasta æðið sem skekur samfélagsmiðla. Hann einkennist af gervigreindarmyndum og myndskeiðum af ókennilegum kynjadýrum sem bera ítölsk bullunöfn. Bent hefur verið á undir sakleysislegu bullinu sé fordómafullur kjarni.

Heilafúi (e. brainrot) er internet-fyrirbæri sem dregur nafn sitt af meintum neikvæðum vitsmunalegum- og sálrænum áhrifum efnisins. Fyrirbærið lýsir bæði sjálfu efninu sem einkennist af handahófskenndum eiginleikum og hegðun þeirra sem neyta efnisins og verja svo miklum tíma á netinu að heili þeirra er farinn að rotna.

Maður fær heilafúa með því að dauðaskruna (e. doom-scroll) út í hið óendanlega og fóðra heilann með gervigreindarrusli sem matar hann dópamíni. Þessi hegðun getur af sér ýmiss konar illskiljanlegt netmál og undarleg æði. Vísir fjallaði í fyrra um ákveðna tegund heilafúans og hugtök tengd honum á borð við sigma, rizz og skibidi toilet.

Kynjaverur að ítölskum sið

Nýjasta tegund þessa efnis er ítalskur heilafúi sem einkennist af kynjaverum, blendingum dýra við önnur fyrirbæri á borð við skó, ávexti eða flugvélar. Þessar ókennilegu verur bera undarleg nöfn á ítölsku, eða ensk-ítölsku blendingsmáli, sem annað hvort lýsa fyrirbærinu eða eru hreinasta rugl.

Erfitt er að útskýra hvað gerir ítalska heilafúann skemmtilegan, hvort það eru sjálf dýrin eða ítalska gervigreindarröddin sem les upp nöfn þeirra og stutta lýsingu á þeim. 

Til marks um vinsældir hans þá hafa stórfyrirtæki byrjað að leika sér með heilafúann, þar á meðal flugfélagið Ryanair og þýska útibú tungumálaforritsins Duolingo. Það sama má segja um hin ýmsu íþróttalið, þar á meðal Juventus og Napoli.

@duolingodeutschland Neue Italienisch Lektion freigeschalten! 🤓☝️ #duolingo #italian #brainrot #trippitroppi #lektion ♬ original sound - 7AJ🎧

Hvaðan kemur ítalski heilafúinn?

Uppruna ítalska heilafúans má rekja til fyrsta kynjadýrsins, hvítháfsins Tralalero Tralala sem gengur um í bláum Nike-strigaskóm, sem meme-fræðibókin Know Your Meme segir hafa birst fyrst í janúar 2025.

TikTok-notandinn @eZburger401 birti myndbandið af hákarlinum þar sem ítölsk karlmannsrödd í fyrstu persónu lýsir hvernig hún hafi verið að spila Fortnite með syni sínum þegar amma hans truflaði leika. Notandinn var síðar bannaður en hljóðbúturinn úr myndbandi hefur lifað áfram.

@vibextreme7 Tralalelo Tralala 🐟👟#Tralalelo #Tralala #Brainrot #ItalianBrainrot #SharkDrip #CursedImage #Weirdcore #Unhinged #Meme #Funny #Viral #FYP #ForYouPage #TikTokTrend #DankMeme #SurrealHumor #WtfMoment #AIArt #Randomcore #AbsurdHumor ♬ Originalton - 𝕸𝖊𝖒𝖊.𝖍𝖚𝖇

Í kjölfarið spruttu fram fleiri kynjaverur, þar á meðal Bombardiro Crocolido sem er sprengjuflugvél með krókódílsandlit og kaktusfíllinn Lirili Larila sem gengur um eyðimörkina í sandölum. Eitt vinsælasta heilafúamyndbandið á TikTok um þessar myndir kemur frá notandanum Sammy Shakiry en þar reynir hann að giska á mismunandi kynjaverur út frá minnstu smáatriðum.

@sammyshakiry Guess the Italian brainrot speedrun (10x zoom) #lirilìlarilà #tralalerotralala #brainrot #bombardilocrocodilo #ai #tripitropitropatripa #trulimerotrulichina #challenge #speedrun ♬ original sound - Sammy

Síðan hafa kynjaverur frá öðrum löndum einnig komist í dreifingu eins og hinn indónesíski Tung Tung Tung Tung Tung Tung Shahur.

@r.p.a01 TRIPA TROPA TRALALA LIRILIRA TUNG TUNG SAHUR BONEKA TUNG TUNG TRALALELO TRIPI TROPA CROCODINA #brainrotanimal #italian ♬ TRIPA TROPA TRALALA LIRILIRA TUNG TUNG SAHUR - r.p.a01

Á Instagram má sjá ýmiss konar myndbönd þar sem leikið er með ítalska heilafúann. Til dæmis þetta hér að neðan þar sem írski leikarinn Cillian Murphy er að veita verðlaun fyrir besta kynjaverubardagakappann meðan tölvuleikurinn Subway Surfers spilast undir. Þegar þetta er skrifað hafa tvær milljónir manna horft á myndbandið.

Tæknifréttamiðillinn Cyber News telur ítalska heilafúann hins vegar ekki hafa birst upp úr þurru, hann vísi í ýmsar hliðar meme-menningar og sé í raun afleiða af þýskum heilafúa sem náði vinsældum á samfélagsmiðlum síðasta haust. 

Þýskur heilafúi einnkennist af myndböndum af teiknimyndadúfu gera ýmiss konar óskunda.

@podolski.4 #germanrot #taube #deutschememes #doofenschmirtz #backrooms #deutschland #animationmeme ♬ Originalton - Podolski

Meintar annarlegar hvatir að baki

Undir myndböndunum af kynjaverunum er gjarnan lýsandi texti. Oftast er hann sakleysislegur samanber lýsinguna á skógarverunni Brr Brr Patapim sem hljómar svo:

„Brr Brr Patapim, hatturinn minn er fullur af Slim. Í þéttum og dularfullum skógi lifði forvitnileg vera. Með flæktar rætur og krosslagða fætur, grannar hendur og veifandi handleggi, nefið eins langt og skinka. Dálítið eins og bavíani, svolítið eins og runni. Hann hét Patapimmo, hversu skrítið!“

@user1919191929380 #brrbrrpatapim ❤️ #trallalerotrallala #tripitropi #bombardirocrocodilo #lirililarila ♬ original sound - zachlath

Hins vegar eru aðrir textar heldur grófari og jafnvel niðrandi. Það á við um Trallalero Trallalero sem er fullur af ýmsum gífuryrðum eða Bombardillo Coccodrillo sem er sagður kasta sprengjum á börn í Gasa og Palestínu og ekki trúa á Allah. 

Af textanum að dæma er ekki ljóst hvort verið sé að gagnrýna ísraelskar árásir á Palestínu eða hæðast að árásunum. Í það virðist markmiðið vera að hneyksla.

Flestar kynjaverurnar eru þó í sakleysislegri kantinum enda virðist markmiðið frekar að gleðja en ergja. Í tilefni umfjöllunarinnar gerði grafíkdeild Vísis íslenska útgáfu af ítalska heilafúanum sem má sjá hér að neðan. Það er spurning hvort það leiðir til frekari íslensks heilafúa.

Klippa: Íslenskur heilafúi að ítölskum sið

Tengdar fréttir

Undarlegt æði skekur TikTok: „Mmm ísinn svo góður“

„Mmm ísinn svo góður. Takk Lopez. Vegðu haha. Mmm ísinn svo góður. Mmm ísinn svo góður. Já já já. Úú já já já,“ segir kona í beinni útsendingu á TikTok meðan hún poppar maísbaun með sléttujárni. Mörg þúsund manns fylgjast með henni og græðir hún þúsundir Bandaríkjadala fyrir verknaðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.