Innlent

Sóttu veikan sjó­mann

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út. Vísir/Vilhelm

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna veikinda um borð í fiskipskipi um hundrað sjómílum vestur af Snæfellsnesi. Einn var sóttur og fluttur á sjúkrahús.

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Upplýsingar um líðan viðkomandi liggja ekki fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×