Atvinnulíf

Á erfitt með að tapa fyrir eigin­manninum í skrafli

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Sigþrúður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Forlagsins, finnst gott að fara hægt inn í daginn; fara í morgunsturtu eins og Trölli (þessi sem stal jólunum), skruna fjölmiðlana á netinu, svara fyrstu tölvupóstunum og hjóla síðna á eldingarhraða í vinnuna.
Sigþrúður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Forlagsins, finnst gott að fara hægt inn í daginn; fara í morgunsturtu eins og Trölli (þessi sem stal jólunum), skruna fjölmiðlana á netinu, svara fyrstu tölvupóstunum og hjóla síðna á eldingarhraða í vinnuna. Vísir/Anton Brink

Sigþrúður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Forlagsins, viðurkennir að eiga erfitt með að tapa fyrir eiginmanninum í skrafli. En almennt telur hún sig tapsára í meðallagi. Sigþrúður stillir ekki vekjaraklukku heldur vaknar bara þegar hún vaknar.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Yfirleitt um sjöleytið. Stundum fyrr og þá reyni ég að drífa mig í sund. Það eru bestu morgnarnir. Ég hætti næstum alveg að stilla vekjara einhvern tíma á síðustu tíu árum og vakna bara þegar ég vakna.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Eins og barnabarnið benti réttilega á eigum við Trölli - þessi sem stal jólunum - það sameiginlegt að fara í morgunsturtu. 

Eftir hana fæ ég mér að borða og finnst mjög gott ef ég þarf ekki að drífa mig af stað í vinnuna heldur get aðeins skrunað fjölmiðlana á netinu eða svarað fyrstu tölvupóstunum heima. 

Mér finnst gott að fara hægt inn í daginn og hjóla svo á eldingarhraða í vinnuna eftir Sæbrautarstígnum.“

Á skalanum 0-10, hversu tapsár ertu í spilum eða leik?

Úff, þessi er erfið. Ég held að ég myndi segja 5. En það fer samt eftir því um hvaða leik er rætt og við hvern er leikið. 

Ég á til dæmis mjög erfitt með að tapa í skrafli fyrir manninum mínum – en það er líka vegna þess að hann malar mig alltaf í öllum spurningaleikjum og þar verð ég ekki tapsár nema hann fari alveg óvenju illa með mig.“



Sigþrúður skrifar endalausta minnismiða og segir að á sama miðann geti lent svo ólíkir hlutir að ef hún finnur margra mánaða gamlan miða, þá geti hún ómögulega skilið hann. Gullna reglan er þó almennt sú að láta ekki hluti bíða að óþörfu heldur ljúka þeim verkum strax sem auðvelt er að leysa.Vísir/Anton Brink

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Ég er að leggja lokahönd á það risaverkefni að innrétta nýjar skrifstofur fyrir Forlagið og sameina alla starfsemina í húsið okkar á Fiskislóð 39. Þar vorum við líka að stækka bókaverslunina okkar og leggja drög að viðburðarými. 

Núna er flest að verða tilbúið en þá ómar í kollinum á mér máltækið hans pabba heitins: Hálfnað er verk þá búið er! 

Smátíningurinn í lokinn getur nefnilega verið drjúgur. 

Fram undan er svo að skipuleggja jólabókaflóðið því að bókaútgefendur huga líklega að jólum fyrr en flestir aðrir.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Stundum finnst mér að skipulagið felist aðallega í því að passa að gleyma engu, þannig að ég skrifa endalausa minnislista, fundapunkta og hitt og þetta til að halda öllu til haga. 

„Á sama miðann geta svo lent aðskiljanlegustu hlutir þannig að ef ég rekst á nokkurra mánaða gamlan minnismiða getur verið algerlega ómögulegt að skilja hann. 

Vinnudagarnir eru oft ansi erilsamir en ég reyni alltaf að búa mér til tíma í lok dags til að sökkva mér ofan í það sem er efst á baugi hverju sinni og skoða vel dagskrá næstu daga. 

Gullna reglan er svo að láta hlutina ekki bíða að óþörfu – ljúka strax þeim verkum sem auðvelt er að leysa.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Við hjónin förum yfirleitt að mjaka okkur í háttinn um ellefuleytið, nema þegar við festumst í einhverju hámhorfi. En ljósin eru alltaf slökkt fyrir miðnætti.“


Tengdar fréttir

„Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“

Tíu mánaða dóttirin sér um að vekja foreldrana heima hjá dellukallinum Elmari Gunnarssyni, framkvæmdastjóra félaganna Vettvangur og Apparatus. Eins og margir þekkja, reyna foreldrarnir þá að skipta á milli sín fyrstu vaktinni svo hitt geti kúrað aðeins lengur.

„Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““

Það er engin lognmolla á morgnana heima hjá Elísu Dögg Moraitis Björnsdóttur, framkvæmdastjóra TVG-Zimsen. Enda mikið um að vera að koma öllum í skóla og leikskóla. Elísa gerir þó oft grín að sjálfri sér því hún er svo skipulögð að nánast allt fer í excel.

Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa

Rósa Dögg Ægisdóttir, framkvæmdastjóri Reon, fer alltof seint að sofa og er sannfærð um að besti svefninn sinn séu þær níu mínútur sem hún nær á milli snúsa. Rósa segir það visst áhyggjuefni hvernig þriggja ára sonurinn er hættur að vekja foreldrana á skikkanlegum tíma.

Að sofna yfir sjónvarpinu á kvöldin telst ekki með

Karitas Ósk Harðardóttir, viðburðarstjóri Innovation Week og einn eigenda brúðkaupsþjónustunnar Stikkfrí, varð eiginlega sjálf hissa á því þegar hún fékk æði fyrir strangheiðarlegum karamellu bakaríssnúðum. Í dag er hún helst með æði fyrir Pilates með vinkonunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×