„Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 10. júlí 2025 11:32 Luigi og Patrik voru að gefa út lagið Gef þér allt. Freyja Rún Friðriksdóttir Patrik og Luigi eru mættir aftur saman með splunku nýjan sumarsmell sem heitir Gef þér allt en þeir frumsýna tónlistarmyndbandið hér í pistlinum.
Hér má sjá tónlistarmyndbandið: Klippa: Patrik ft. Luigi - Gef þér allt „Fólk vildi annað lag með okkur tveim saman og það var komin pressa frá aðdáendum þannig við ákváðum að svara kallinu,“ segir Patrik um samstarfið en þeir hafa sameinað krafta sína við gerð smella á borð við Skína og Hiti á klúbbnum. Patrik við tökur Freyja Rún Friðriksdóttir Lagið fjallar meðal annars um konurnar í lífi strákanna. „Við gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi,“ bætir Patrik við og þaðan kom innblásturinn. Hann heyrði svo í Orra Guðmundssyni sem leikstýrði myndbandinu. „Tónlistarmyndbandið við lagið „Gef þér allt“ eftir PATR!K og Luigi var verkefni sem ég fékk að leikstýra og það var frá upphafi ljóst að þetta yrði mjög skemmtilegt myndband. Þegar Patrik hafði samband við mig og við fórum strax á flug í alls konar skemmtilegum pælingum.“ Patrik sótti sömuleiðis fagurfræðilegan innblástur í myndbandið við Life is Good með tónlistarmönnunum Drake og Future. Innblásturinn kom meðal annars úr tónlistarmyndbandinu Life is good.Skjáskot „Sá reffi gaf okkur frábært svigrúm til að leika okkur og ýta undir sköpunargleðina. Að leikstýra þessu myndbandi var sannarlega skemmtilegt ferli. Það var ótrúlega gaman að vinna með þessum frábæra hópi fólks og ég vona að sú gleði sem var lögð í gerð myndbandsins smiti út frá sér til allra þeirra sem horfa á það,“ segir Orri glaður í bragði.
Tónlist Mest lesið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist „Erum bara vinir“ Lífið Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Tíska og hönnun Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar Lífið samstarf Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir Lífið Fleiri fréttir Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira