Hætta með Þarf alltaf að vera grín? af persónulegum ástæðum Magnús Jochum Pálsson skrifar 3. september 2025 15:45 Tinna og Ingólfur „Gói Sportrönd“ eiga tvær dætur og einn son saman og hafa haldið úti Þarf alltaf að vera grín? í sjö ár ásamt vini þeirra, Tryggva. Skjáskot/Instagram Hlaðvarpið Þarf alltaf að vera grín, sem parið Tinna Björk Kristinsdóttir og Ingólfur „Gói sportrönd“ Grétarsson hefur haldið úti síðustu sjö ár með Tryggva Frey Torfasyni, hefur hætt göngu sinni. Þríeykið segir það þungt skref en tímabært af persónulegra aðstæðna.
Þríeykið greindi frá fréttunum í nýjasta þætti hlaðvarpsins og í kjölfarið á Instagram-síðu hlaðvarpsins upp úr þrjúleytinu í dag. „Við erum ykkur ævinlega þakklát fyrir stuðninginn og samfylgdina í gegnum árin. Þetta góða og fallega samfélag sem hefur skapast í kringum þættina er okkur ómetanlegt og við vonum að þið munið áfram fylgja okkur í hverju því sem við tökum okkur fyrir hendur í framtíðinni,“ stendur í færslunni. View this post on Instagram A post shared by Þarf alltaf að vera grín? (@tharfalltafadveragrin) Þá þakkar þríeykið fylgjendum fyrir falleg skilaboð, líflegar umræður og hlý orð á förnum vegi. „Þarf alltaf að vera grín? væri ekkert án ykkar og þið haldið vonandi lífi í öllu góða gríninu. Við elskum að sjá póstana ykkar hér inn á og við stefnum á að vera áfram virk í athugasemdum. Þættirnir verða að sjálfsögðu aðgengilegir á hlaðvarpsveitum en við eigum eftir að útfæra hvernig þið getið haft aðgang að áskriftarþáttunum, látum vita þegar það er komið á hreint,“ stendur jafnframt í færslunni. „Þessi kveðjustund kallar fram allskonar tilfinningar hjá okkur öllum og kemur kannski eins og tittlingur upp úr öðrum ef þið eruð ekki búin að hlusta á lokaþáttinn,“ segir einnig. Að lokum þakkar þríeykið hlustendum fyrir að „gefa okkur tíma og rými til að takast á við þessar breytingar í okkar lífi“. Hlusta má á lokaþátt hlaðvarpsins hér að neðan:
Tímamót Hlaðvörp Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Kát á kynfræðslukarnivali Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira