Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. september 2025 17:37 Andri Már Ólafsson formaður handknattleiksdeildar Hauka og Darri Aronsson handsala samninginn. Darri Aronsson er snúinn aftur heim í Hauka eftir þrjú ár í Frakklandi án þess að spila leik. Hann er loks farinn að æfa á ný og stefnir á að spila með liðinu í Olís deild karla í vetur. „
Það hefur verið langt og krefjandi ferðalag, en ég er þakklátur fyrir að vera kominn aftur á gólfið og hlakka til að taka af alvöru þátt í æfingum með strákunum,“ segir Darri í tilkynningu Hauka. Samningur Darra við lið Ivry í París rann út í sumar en hann gekk í raðir liðsins haustið 2022. Hann kom þá meiddur út til liðsins, álagsbrot í rist gerði vart við sig. En þegar samningur hans þar ytra rann út nú í vor hafði hann ekki enn spilað fyrir franska félagið, vegna ítrekaðra meiðsla sem hafa elt hann á röndum síðan. Darri hafði leikið með Haukum allan sinn meistaraflokksferil áður en hann fór út. Hann varð deildarmeistari með Haukum tímabilið 2020-21 og fór í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Á sínu síðasta tímabili í Olís deildinni var hann þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar. Hjá Haukum hittir hann yngri bræður sína, Jakob og Frey Aronssyni. Þeir eiga hæfileikana ekki langt að sækja en foreldrar þeirra eru Aron Kristjánsson og Hulda Bjarnadóttir, fyrrverandi landsliðsfólk í handbolta líkt og fleiri skyldmenni þeirra.
Haukar Olís-deild karla Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Sjá meira