Jón Þór ráðinn í björgunaraðgerðir hjá Vestra Sindri Sverrisson skrifar 30. september 2025 08:50 Jón Þór Hauksson var síðast þjálfari ÍA. vísir / jón gautur Jón Þór Hauksson tekur við af Davíð Smára Lamude og mun stýra Vestra það sem eftir er af leiktíðinni í Bestu deild karla í fótbolta.
Samkvæmt upplýsingum Vísis stendur til að tilkynna þetta formlega síðar í dag, eftir að greint var frá því í gærkvöld að Davíð Smári væri hættur hjá félaginu. Eftir því sem Vísir kemst næst var það að frumkvæði stjórnar Vestra sem Davíð Smári steig frá borði nú þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir af Bestu deildinni. Jón Þór er ráðinn til að klára tímabilið og verður framhaldið svo metið að því loknu, þegar jafnframt verður ljóst í hvaða deild Vestri spilar á næsta ári. Eftir einstakan árangur á síðustu árum, þar sem Davíð stýrði Vestra upp í Bestu deildina og gerði svo liðið að bikarmeistara í ágúst, hefur sigið á ógæfuhliðina eftir bikarúrslitaleikinn og Vestri sogast niður í bullandi fallbaráttu. Liðið er aðeins tveimur stigum frá fallsæti en öruggt um að spila að minnsta kosti tvö Evrópueinvígi á næsta ári, vegna bikarmeistaratitilsins. Töpin tvö á heimavelli í síðustu leikjum, 4-0 gegn ÍA og 5-0 gegn ÍBV, gerðu útslagið með það að ákveðið var að breyta til og leita til Jóns Þórs sem síðast þjálfaði ÍA en var látinn fara í sumar. Jón Þór hefur áður stýrt Vestra, seinni hluta tímabilsins 2021, og gerði þá góða hluti með liðið sem endaði í 5. sæti Lengjudeildar og komst í undanúrslit í bikar. Hann hætti svo um veturinn þegar óvænt tækifæri gafst til að taka við ÍA í heimabæ hans, Akranesi, eftir að Jóhannes Karl Guðjónsson var ráðinn aðstoðarlandsliðsþjálfari. Jón Þór hefur áður einnig stýrt kvennalandsliði Íslands með góðum árangri og var aðstoðarþjálfari karlaliðs Stjörnunnar. Uppfært kl. 9.55: Vestri hefur nú staðfest ráðningu Jóns Þórs og segir hann stýra fyrstu æfingu í dag.
Besta deild karla Vestri Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Sjá meira