Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. október 2025 15:54 Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk og gaf fjórar stoðsendingar í sigri Magdeburg í bronsleiknum á HM félagsliða. getty/Ruben De La Rosa Magdeburg sigraði Al Ahly frá Egyptalandi örugglega, 32-23, í leiknum um 3. sætið á HM félagsliða í handbolta. Íslendingarnir í liði Evrópumeistaranna skoruðu samtals tíu mörk í leiknum.
Magdeburg tapaði fyrir Veszprém, 23-20, í undanúrslitum keppninnar í fyrradag. Þar með var útséð með að liðið yrði heimsmeistari félagsliða í fjórða sinn á fimm árum. Magdeburg vann keppnina 2021, 2022 og 2023 en lenti í 2. sæti 2024. Danski línumaðurinn Magnus Saugstrup var markahæstur í liði Magdeburg gegn Al Ahly með sjö mörk. Philipp Weber skoraði sex mörk og Ómar Ingi Magnússon fimm. Elvar Örn Jónsson skoraði þrjú mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson tvö auk þess sem hann gaf fjórar stoðsendingar. Magdeburg byrjaði leikinn af miklum krafti og eftir sautján mínútur leiddi liðið með átta mörkum, 12-4. Sami munur var á liðunum í hálfleik, 19-11. Evrópumeistararnir héldu í horfinu í seinni hálfleik og unnu á endanum níu marka sigur, 32-23. Í úrslitaleik HM félagsliða í kvöld etur Veszprém kappi við Barcelona. Bjarki Már Elísson mætir þar félaga sínum úr íslenska landsliðinu, Viktori Gísla Hallgrímssyni.
Handbolti Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Sjá meira