Framarar töpuðu aftur á heimavelli í Evrópudeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2025 20:19 Rúnar Kárason skorar eitt af mörkum sínum í kvöld. Vísir/Anton Brink Íslandsmeistarar Fram urðu að sætta sig við sex marka tap á móti norska félaginu Elverum í Evrópudeildinni í gær.
Elverum mætti í Lambhagahöllina í Úlfarsárdal og vann 35-29 sigur eftir að staðan var jöfn í hálfleik. Norðmennirnir unnu síðari hálfleikinn 16-10. Framliðið hefur þar með tapað tveimur fyrstu leikjunum í riðlinum en þeir voru báðir á heimavelli liðsins. Þetta var hins vegar fyrsti sigurleikur norska liðsins. Rúnar Kárason var atkvæðamestur í Framliðinu með sjö mörk en Ívar Logi Styrmisson skoraði sex mörk þar af fimm þeirra í fyrri hálfleik. Dagur Fannar Möller var síðan með fimm mörk. Framarar byrjuðu ekki vel og lentu meðal annars fjórum mörkum undir um miðjan fyrri hálfleik, 6-10. Framliðið gerði vel í að vinna sig aftur inn í leikinn og var búið að jafna í 14-14 eftir 8-4 sprett. Þeir byggðu ofan á þetta og komust yfir í 17-16 en staðan var jöfn í hálfleik, 19-19. Framarar réðu illa við Péter Lukács sem skoraði átta mörk í fyrri hálfleiknum. Norska liðið var hins vegar sterkara í seinni hálfleiknum og tryggði sér þá nokkuð sannfærandi sex marka sigur. Þorsteinn Leó Gunnarsson og félagar í portúgalska félaginu Porto unnu þrettán marka heimasigur á svissneska liðinu Luzern, 44-31. Þorsteinn Leó skoraði tvö mörk. Arnar Freyr Arnarsson var með tvö mörk fyrir MT Melsungen í eins marks útisigri í Íslendingaslag á móti Karlskrona, 26-25. Arnór Viðarsson skoraði þrjú mörk fyrir Karlskrona. Stiven Tobar Valencia skoraði þrjú mörk fyrir portúgalska félagið Benfica í 38-25 sigri á FTC-Green Collect.
Evrópudeild karla í handbolta Fram Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira