Gengi Eimskips lækkar vegna bilunarinnar Árni Sæberg skrifar 22. október 2025 11:26 Talvert magn af áli fer um Grundartangahöfn. Vísir/Vilhelm Bilun hjá Norðuráli á Grundartanga, sem veldur því að framleiðsla dregst saman um tvo þriðju, mun hafa áhrif á rekstur Eimskips, enda er Norðurál einn stærsti viðskiptavinur skipafélagsins. Gengi hlutabréfa félagsins hefur lækkað hressilega frá opnun markaða í dag.
Norðurál tilkynnti um það í gær að framleiðsla hafi verið stöðvuð í stórum hluta álversins á Grundartanga vegna bilunar í rafbúnaði. Formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins segir bilunina mikið áfall fyrir starfsemina, starfsfólkið og samfélagið allt á Akranesi og í nærsveitum. Nú hefur Eimskip sent tilkynningu til Kauphallar þar sem segir að félagið hafi átt í góðum samskiptum við Norðurál þar sem staðfest hafi verið að framleiðslugeta félagsins yrði tímabundið um þriðjungur af fullum afköstum verksmiðjunnar. „Norðurál er einn af stærri viðskiptavinum Eimskips og því mun þetta rekstraráfall hafa neikvæð áhrif á flutningsmagn Eimskips. Á þessari stundu er ekki vitað hve langan tíma tekur að koma framleiðslunni í full afköst. Eimskip mun upplýsa nánar um áhrifin þegar að frekari upplýsingar liggja fyrir.“ Þegar fréttin er skrifuð hefur gengi hlutabréfa í Eimskip lækkað um 8,5 prósent frá opnun markaða í dag.
Eimskip Skipaflutningar Áliðnaður Stóriðja Bilun hjá Norðuráli Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira