Matthildur Lilja kölluð inn í HM hópinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. nóvember 2025 12:57 Matthildur Lilja Jónsdóttir er 21 árs gömul og spilar með hinu öfluga liði ÍR. Vísir/Diego Matthildur Lilja Jónsdóttir leikmaður ÍR hefur verið kölluð inn í íslenska landsliðshópinn fyrir komandi heimsmeistaramót kvenna í handbolta. Matthildur bætist við þá sextán leikmenn sem tilkynntir voru fyrr í mánuðinum.
Þetta kemur fram á heimasíðu Handknattleikssambands Íslands. Andrea Jacobsen sleit liðband í ökkla á æfingu hjá sínu félagsliði í Þýskalandi, Blomberg-Lippe, í síðustu viku og ólíklegt að hún verði orðin klár fyrir heimsmeistaramótið. Matthildur Lilja er annar leikmaður ÍR sem er í hópnum en varnarmaðurinn öflugi Katrín Tinna Jensdóttir er einnig í hópnum. ÍR-liðið hefur komið mikið á óvart í vetur og vann Íslandsmeistara Vals í síðasta leiknum fyrir HM-frí. Matthildur er með 2,9 mörk og 2,4 stoðsendingar að meðaltali í leik í Olís-deild kvenna. Hún hefur verið í æfingahóp áður og lék sinn fyrsta landsleik í Danmerkurferðinni á dögunum. Hún hefur því verið að taka stór skref á þessu tímabili og þetta er án efa það stærsta. Stelpurnar okkar hefja undirbúning sinn í dag. Á föstudaginn ferðast hópurinn til Færeyja þar sem þær leika vináttulandsleik gegn heimakonum. Ísland hefur leik á HM 26. nóvember gegn Þýskalandi.
Landslið kvenna í handbolta HM kvenna í handbolta 2025 ÍR Olís-deild kvenna Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Sjá meira