Fyrirtæki óvenju virk í fasteignakaupum í október Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. nóvember 2025 07:02 Fasteignamarkaðurinn er kaupendamarkaður um þessar mundir, að mati fasteignasala. Vísir/Vilhelm Kaupsamningum þar sem lögaðilar eru skráðir meðal kaupenda fasteigna hefur fjölgað úr átta prósent að meðaltali það sem af er ári, í þrettán prósent í október. Meðal annars er um að ræða kaupsamninga þar sem fjárfestingasjóðir bjóðast til að kaupa allt að fjórðungshlut í fasteignum sem þeir eru að selja.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Hlutfallið fór hæst í 22 prósent í desember 2023, þegar leigufélög festu kaup á fjölda íbúða á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni til að leigja til Grindvíkinga. Þinglýstir kaupsamningar um íbúðarhúsnæði voru 983 í september og fjölgaði um fimm prósent milli mánaða. Þá benda gögn til þess að umsvif á fasteignamarkaði hafi verið svipuð í október en um 1.019 eignir voru teknar af söluskrá í mánuðinum. Fyrstu tölur um fjölda kaupsamninga í október gefa til kynna að sú óvissa sem skapaðist í kjölfar vaxtadómsins svokallaða, með tilheyrandi samdrætti í lánaframboði, hafi ekki haft veruleg áhrif á fjölda kaupsamninga í mánuðinum. Enn hægir þó á umsvifum að mati fasteignasala en 90 prósent telja virkni markaðarins litla miðað við árstíma. Markaðurinn er meiri kaupendamarkaður og verðþrýstingur minni, að mati fasteignasala. Vísitala íbúðaverðs í október stóð í stað milli mánaða en íbúðaverð hefur lækkað um 0,4 prósent að raunvirði milli október 2024 og 2025. Íbúðaverð hefur hækkað um 3,87 prósent á sama tíma og verðbólga mælist 4,3 prósent. Sérbýli á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað mikið í verði en vísitala sérbýlis er þó öllu sveiflukenndari en vísitala fjölbýlis. Meðalkaupverð sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu var í kringum 149 milljónir króna í september. Enn eru það ódýrustu íbúðirnar sem seljast best en best gengur að selja íbúðir sem kosta allt að 65 milljónir króna. Hér má finna skýrsluna í heild.
Fasteignamarkaður Húsnæðismál Mest lesið „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Viðskipti erlent Engar hópuppsagnir í apríl Viðskipti innlent Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Sjá meira