Selfoss sótti óvænt sigur og Afturelding dregst aftur úr Ágúst Orri Arnarson skrifar 20. nóvember 2025 20:44 Afturelding hefur dregist aðeins aftur úr toppbaráttu Olís deildarinnar. vísir Selfoss sótti óvænt sigur eftir æsispennandi leik gegn Aftureldingu, sem missti af mikilvægum stigum í toppbaráttunni í Olís deild karla. Lokatölur í Mosfellsbænum 28-29.
Afturelding er í 2. sæti deildarinnar en Selfoss er í 11. sætinu. Flestir hefðu því búist við sigri hjá heimamönnum en Selfyssingar höfðu aðrar hugmyndir og buðu upp á hörkuleik. Afturelding var með forystuna lengst af og leiddi með þremur mörkum í hálfleik en um miðjan seinni hálfleik sneri Selfoss taflinu við og komst þremur mörkum yfir. Sveiflurnar urðu fleiri því Afturelding að jafna og komast aftur yfir, en heimamenn skoruðu síðan ekkert síðustu fimm mínútur leiksins á meðan Selfoss setti tvö mörk sem dugðu til sigurs. Alexander Hrafnkelsson átti mjög mikilvæga markvörslu þegar aðeins hálf mínúta var eftir og kom í veg fyrir að Afturelding jafnaði leikinn. Hannes Höskuldsson og Anton Breki Hjaltason voru markahæstir hjá Selfossi með 6 mörk hvor en Árni Bragi Eyjólfsson var markahæstur hjá Aftureldingu með 8 mörk. Sigurinn kemur Selfossi upp að hlið Þórs frá Akureyri en bæði lið eru með 7 stig, í 11. og 10. sæti deildarinnar. Tapið er sérlega súrt fyrir Aftureldingu því Haukar unnu sinn leik gegn HK fyrr í kvöld og styrktu stöðu sína á toppnum. Afturelding er nú þremur stigum frá toppliðinu.
Olís-deild karla Grunur um manndráp á Selfossi Afturelding Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Sjá meira