Önnur mesta rýrnun Hofsjökuls frá upphafi mælinga Lovísa Arnardóttir skrifar 5. desember 2025 12:19 Gervrvitunglamyndin sýnir legu hins nýja sigketils og sprungurnar í kringum hann. Veðurstofan Í nóvember mældist önnur mesta rýrnun Hofsjökuls frá upphafi mælinga. Rúmmál jökulsins hefur á 38 árum rýrnað úr um 200 rúmkílómetrum í um 165 rúmkílómetra, sem jafngildir um 17 prósenta minnkun. Flatarmálið hefur dregist saman um 15 prósent á sama tímabili og er nú komið niður fyrir 790 km2.
Þetta kemur fram í nýrri umfjöllun á vef Veðurstofunnar en þrír starfsmenn fóru á jökulinn um miðjan síðasta mánuð til sumarleysinga. Þar kemur fram að leysingin hafi verið mikil á Hofsjökli sumarið 2025. Vísindamenn hafa komið fyrir tuttugu stikum til að mæla og í umfjöllun Veðurstofunnar kemur fram að neðstu stikurnar, sem eru í 800 til 900 metra hæð, hafi sýnt að allur snjór síðasta vetrar bráðnaði og þar að auki fimm til sex metrar af jökulís. Í umfjöllun kemur fram að þegar heildarniðurstaðan er tekin saman komi í ljós að ákoma um veturinn hafi verið í lægra lagi. Vatnsgildi vetrarlagsins hafi að jafnaði numið 1,2 metrum og því raðist árið því í 35. sæti af 38 á kvarða vetrarafkomu. Sumarafkoman mældist hins vegar –3,0 m og hefur aðeins þrívegis mælst meiri leysing. Það er árin 1991, 2003 og 2010. Þar vógu samspil hlýinda og eldfjallagjósku þungt, gjóska frá Heklu árið 1991 og frá Eyjafjallajökli árið 2010 hafði veruleg áhrif. Afkoman yfirleitt neikvæð Í umfjöllun segir að við útreikninga þurfi að taka tillit til þess að sumir mælistaðir séu í snjókistum og ekki sé unnt að mæla á sprungusvæðum. Í umfjöllun Veðurstofunnar kemur jafnframt fram að á þeim 38 árum þar sem mælingar hafa farið fram á jöklinum hafi afkoman aðeins verið jákvæð fimm sinnum, en neikvæð í 33 skipti. Rúmmál jökulsins hefur á þessu tímabili rýrnað úr um 200 rúmkílómetrum í um 165 rúmkílómetra, sem jafngildir um 17 prósenta minnkun. Flatarmálið hefur dregist saman um 15 prósent á sama tímabili og er nú komið niður fyrir 790 km2. Hofsjökull fer því enn síminnkandi í hlýju loftslagi líkt og aðrir jöklar landsins. Í umfjöllun Veðurstofunnar segir að mjög óvenjulegt sé að geta mælt leysingar svo seint á árinu. Hausthlýindi hafi náð fram í miðjan október og lítill snjór hafi fallið á jökla fyrr en komið var fram í nóvember. Aðstæður séu nú orðnar þannig á jöklum landsins að bíða þarf eftir að fyrstu snjóar að hausti fylli sprungur og ójöfnur, svo yfirborðið verði fært farartækjum. Skyggni gott Skyggni var samkvæmt umfjölluninni gott á jöklinum og þegar komið var í um 1500 metra hæð, norðan gosöskjunnar miklu, sem liggur undir jöklinum, kom í ljós nýmyndaður sigketill á þeirri leið sem jafnan er ekin áleiðis upp á hábunguna. Ketillinn sást ekki í vorferðinni og hefur því myndast yfir sumarið. Auðvelt reyndist að sveigja austur fyrir hann en þarna þarf að hafa varann á framvegis. Meðfylgjandi gervitunglamynd sýnir legu hins nýja sigketils og sprungurnar í kringum hann.
Jöklar á Íslandi Loftslagsmál Umhverfismál Veður Bláskógabyggð Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira