Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina Valur Páll Eiríksson skrifar 19. desember 2025 21:41 ÍR-ingar glöddust mjög í kvöld, eðlilega. Instagram/@ir_handbolti Sigurmark Garðars Inga Sindrasonar til að skjóta FH í undanúrslit bikarkeppninnar í handbolta rennur honum að líkindum seint úr minni. Hann skoraði á síðustu sekúndu leiksins mark sem skaut liðinu áfram.
FH sótti Aftureldingu heim í Mosfellsbæ í kvöld og úr varð sérlega spennandi leikur. Liðin skiptust á forystunni í fyrri hálfleik þar sem munurinn varð aldrei meiri en eitt mark fyrsta hálftímann. FH var ofan á þegar hálfleiksflautið gall, staðan 16-15 í hléi. FH byrjaði síðari hálfleikinn betur og í fyrsta sinn jókst munurinn um meira en eitt mark og var orðin heil sex mörk, 21-15, eftir að FH-ingar höfðu skorað fyrstu fimm mörk hálfleiksins. Við tók áhlaup frá Mosfellingum sem jöfnuðu, 23-23, um hálfleikinn miðjan og við tók þá loka korter sem var keimlíkt fyrri hálfleiknum. FH var ávallt skrefi á undan en Mosfellingum tókst að jafna með marki Þorvaldar Tryggvasonar þegar tíu sekúndur voru eftir. Garðar Ingi var hetja FH-inga í kvöld.Vísir/Hulda Margrét Allt stefndi í framlengingu en FH-ingar tóku leikhlé til að stilla upp í síðustu sókn sína sem skotgekk. Garðar Ingi Sindrason skoraði flautumark á lokasekúndunni af miðjum teignum til að skjóta FH-inga áfram í undanúrslit bikarsins. Garðar var markahæstur FH-inga í kvöld með átta mörk en Símon Michael Guðjónsson skoraði sjö. Ihor Kopyshynskyi skoraði átta fyrir Mosfellinga sem fara súrir á koddann í nótt. Breiðhyltingar örugglega áfram ÍR úr Breiðholti fór einnig áfram í undanúrslit í kvöld eftir sigur á Fjölni í Grafarvogi. ÍR-ingar náðu 5-1 forystu snemma leiks gegn B-deildarliði og litu aldrei um öxl. Þeir leiddu með fimm mörkum í hálfleik 21-16 og héldu forystunni allt til loka. Þeir juku forystuna raunar og unnu með átta marka mun í miklum markaleik, 42-34. Baldur Fritz Bjarnason var markahæstur ÍR-inga með 13 mörk en Bernard Kristján Owusu Darkoh skoraði átta líkt og Sveinn Brynjar Agnarsson. Í liði Fjölnis var Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson markahæstur með tíu mörk. ÍR og FH fylgja því Haukum og KA áfram í úrslitahelgina í Laugardalshöllinni í mars næstkomandi.
Powerade-bikarinn ÍR FH Afturelding Fjölnir Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira