Samningur í höfn á síðustu stundu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. janúar 2026 11:25 Eva Rós er framkvæmdastjóri Bergsins. Vísir/Sigurjón Samningur til eins árs um fjárstyrk til stuðnings- og ráðgjafarsetursins Bergið headspace var undirritaður rétt fyrir jól eftir að framkvæmdastjóri setursins sagðist óttast að loka þyrfti úrræðinu. Hún segist sátt en vonar enn að fá langtímastuðning. „
Við göngum sátt frá borði,“ segir Eva Rós Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins headspace. Bergið headspace er stuðnings- og ráðgjafasetur þar sem ungmenni á aldrinum tólf til 25 ára geta fengið lágþröskuldaþjónustu með áherslu á stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Í nóvember var samningurinn enn ekki í höfn og sagðist Eva Rós óttast að loka þyrfti starfseminni ef ekki fengist áframhaldandi stuðningur frá stjórnvöldum. Í kjölfar umfjöllunar um Bergið headspace sagði Guðmundur Ingi Kristinsson, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, að fundað hefði verið um áframhaldandi stuðning. Ekki hafði verið haft samband við Evu Rós á þeim tímapunkti en í samtali við fréttastofu segir hún að samningurinn hafi verið undirritaður rétt fyrir jól. Stuðningur við setrið nær yfir þrjú ráðuneyti: mennta- og barnamálaráðuneytið, félags- og húsnæðismálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið. „Það var gengið frá samningi rétt fyrir jól, sem er ágætt í ljósi stólaskiptinga í gær,“ segir hún. Sjá nánar: „Það eru tímamót hjá ríkisstjórninni okkar“ Hærri upphæð og viðræður um lengri samning Samningurinn tryggir áframhaldandi stuðning til eins árs, með þeim vilyrðum að gengið verði til viðræðna um langtímasamning í haust. Áður en að ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar sprakk hafði legið fyrir langtímasamningur en ekki náðist að undirrita samninginn fyrir endaloka stjórnarinnar. Eva Rós sagði fyrir áramót að enn væri óskað eftir samningi til þriggja ára og 150 milljóna króna framlagi. Nýi styrkurinn hafi ekki verið upp á þá upphæð en hún segist samt sem áður vera afar ánægð með upphæðina. „Það er hækkun samhliða aukinni aðsókn en við erum sátt og þakklát fyrir þennan stuðning,“ segir Eva Rós. „Við viljum langtímasamning og það virðist vera vilji fyrir því.“
Geðheilbrigði Börn og uppeldi Tengdar fréttir Óttast að þurfa að loka Berginu fái þau ekki samning Framkvæmdastjóri Bergsins headspace óttast að fái þau ekki áframhaldandi samning við íslenska ríkið þurfi þau að loka starfseminni. Um þúsund ungmenni nýta sér starfsemina ár hvert. 18. nóvember 2025 17:02 Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira
Óttast að þurfa að loka Berginu fái þau ekki samning Framkvæmdastjóri Bergsins headspace óttast að fái þau ekki áframhaldandi samning við íslenska ríkið þurfi þau að loka starfseminni. Um þúsund ungmenni nýta sér starfsemina ár hvert. 18. nóvember 2025 17:02