Íslenski læknirinn hjá sænska landsliðinu bjartsýnn á að Palicka verði með Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2026 16:30 Andreas Palicka er frábær markvörður og virðist sem betur fer ekki hafa orðið mikið meint af því að vera skotinn niður í gær. Getty/Lars Baron Sænski landsliðsmarkvörðurinn Andreas Palicka virðist hafa haft heppnina með sér þegar hann fékk þrumuskot í andlitið í gærkvöldi í undirbúningsleik Svía fyrir komandi Evrópumót.
Palicka var bara búinn að spila í fimm mínútur í leiknum þegar hann var skotinn niður. Hann fór inn í klefa og svo á sjúkrahús eftir leikinn. Í dag komu gleðifréttir úr herbúðum Svía. „Maður verður auðvitað hræddur þegar um högg á auga er að ræða og vill fullvissa sig um að það sé ekkert alvarlegt. Ég er þakklátur fyrir að hafa fljótt fengið að hitta sérfræðing sem gat róað okkur,“ sagði Andreas Palicka í yfirlýsingu frá sænska landsliðinu. Læknateymi sænska liðsins tók enga áhættu og sendi Palicka á sjúkrahús eftir að hafa fengið skot Brasilíumannsins í andlitið. „Andreas komst fljótt til augnsérfræðings og það var staðfest að hann er með blæðingu inn á augað. Hann mun ekki æfa næstu daga, en við erum vongóð um að eftir nýtt mat geti hann byrjað að æfa aftur í byrjun næstu viku og verði klár í fyrsta leikinn á EM,“ segir Arnar Sigurðsson, íslenskur landsliðslæknir Svía. Svíar mæta Hollendingum í fyrsta leik á Evrópumótinu 17. janúar næstkomandi en þeir eru einnig með Króötum og Georgíumönnum í riðli. Riðill Svía fer fram í Malmö.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira