Fyrsta ár Náttúruverndarstofnunar gekk glimrandi vel Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 11. janúar 2026 14:03 Sigrún Ágústsdóttir, sem er forstjóri Náttúruverndarstofnunar en stofnunin er með höfuðstöðvar sínar á Hvolsvelli. Magnús Hlynur Hreiðarsson Nýliðið ár var mikið uppskeruár hjá Náttúruverndarstofnun því gestastofur voru opnaðar víða um land. Þá voru sérstakar sýningar opnaðar á Kirkjubæjarklaustri, í Mývatnssveit og á Hellissandi en allar þessar sýningar fengu sérstök hönnunarverðlaun.
Náttúruverndarstofnun er ríkisstofnun og heyrir undir umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið. Stofnunin tók til starfa 1. janúar 2025 og sinnir verkefnum sem snúa að náttúruvernd, lífríkis- og veiðistjórnun. Höfuðstöðvar stofnunarinnar eru á Hvolsvelli þar sem Sigrún Ágústsdóttir stýrir stofnuninni. En hvernig hefur þetta fyrsta ár gengið? „Þetta hefur verið heilmikið mótunarár en það sem hefur verið ótrúlega skemmtilegt og bara magnað er að þetta var mikið uppskeruár líka. Við höfum verið að opna gestastofur víða um land en við vorum, sem sagt bæði að opna sýningu á Kirkjubæjarklaustri og síðan í Mývatnssveitinni á þessu sama ári og núna síðast á Hellissandi. Og það, sem er enn skemmtilegra er að þessar gestastofur fengu hönnunarverðlaun, „Besta fjárfestingin 2025“,” segir Sigrún alsæl. Þetta er ótrúlega vel gert hjá ykkur, ertu ekki ánægð? „Jú, þetta er alveg með ólíkindum og bak við þetta er náttúrulega mikil elja starfsfólks og þekking og þau leggja alla þekkinguna sína inn í sýningarnar og fá með sér bara frábæra hönnuði, sem að láta þetta svo vakna til lífsins í sýningum, þannig að ég verð að mæla með því við alla að skoða þessar sýningar, leggja bara 2026 í það,” segir Sigrún hlæjandi. Hreindýr við Höfn í Hornafirði að pissa.Magnús Hlynur Hreiðarsson Sigrún segir að Náttúruverndarstofnun sinni öllum náttúruverndarsvæðum Íslands nema Þingvöllum, en um 130 staði er að ræða. „Við sinnum líka veiðistjórnun, það að segja veiðum á fuglum og spendýrum, hreindýrin til dæmis svo eitthvað sé nefnt og rjúpan, þannig að við erum náttúrulega í skemmtilegustu verkefnunum, erum heppnust af öllum,” segir Sigrún. Heimasíða stofununarinnar Starfsemi Náttúruverndarstofnunar er mjög fjölbreytt en á heimasíðu stofnunarinnar er hægt að kynna sér það allt miklu frekar.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Rangárþing eystra Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent Fleiri fréttir „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Sjá meira