Svindluðu á þolprófi og fá ekki að dæma á EM Valur Páll Eiríksson skrifar 10. janúar 2026 13:01 Nikolov og Nachevski svindluðu og dæma ekki. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þeir eru sakaðir um siðferðislega bresti í starfi. Axel Heimken/picture alliance via Getty Images Norður-makedónsku dómararnir Slave Nikolov og Gjorgji Nachevski fá ekki að dæma á komandi Evrópumóti í handbolta vegna svindls á þolprófi.
Evrópska handboltasambandið, EHF, tilkynnti um ákvörðunina í dag. Samkvæmt reglum sambandsins þurfa dómarar að standast þolpróf til að mega dæma á EM. Slíkt próf er hægt að taka hvar sem er, svo lengi sem dómararnir skila inn gögnum til sambandsins sem sanna að þeir hafi staðist prófið. Þeir Nikolov og Nachevski skiluðu einn myndböndum af sér við eitt prófanna, annars vegar átta vikum fyrir mót og hins vegar fjórum vikum fyrir mót. Fyrirtækið Fitgood Pro, samstarfsaðili EHF þegar kemur að heilbrigðismálum, fór yfir myndskeiðin sem þeir félagar skiluðu inn. Sambandið fékk að vita af því í lok desember að líklega hefði verið átt við myndefnið. Það sýni því ekki raunverulega frammistöðu þeirra á prófinu. Frekari rannsókn var gerð á myndefninu og niðurstaðan sú að dómararnir hefðu skilað inn fölsuðum myndböndum við prófið. Af þeim sökum hefur EHF tekið þá ákvörðun að draga tilnefningu Nikolov og Nachevski til baka og munu þeir því ekki dæma á komandi Evrópumóti sem fram fer í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Þeir voru á meðal 18 dómarapara sem áttu að dæma á mótinu en þau verða nú 17 talsins. Þar á meðal eru Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson. Fram kemur í yfirlýsingu EHF að málið verði kannað frekar í framhaldinu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Nikolov og Nachevski eru sakaðir um siðferðislega bresti í starfi. Í rannsóknarheimildaþætti TV2 árið 2023 voru þeir bendlaðir við hagræðingu úrslita. Það fékkst þó ekki sannað og þeir félagar dæmt án vandræða síðan.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira