Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. janúar 2026 13:48 Lasse Möller og Magnus Landin þurftu að bera Lukas Jörgensen af velli þar sem hann gat ekki gengið. EPA/Sebastian Elias Uth Send2net DENMARK OUT Fimmtán marka sigur og sæti í milliriðlum er vanalega tilefni til að gleðjast en frændur okkar frá Danmörku fóru svekktir af velli eftir 39-24 sigurinn gegn Rúmeníu í gærkvöldi.
Línumaðurinn Lukas Jörgensen varð fyrir alvarlegum meiðslum undir lok leiks og var borinn af velli af liðsfélögum sínum. Beðið er eftir niðurstöðum úr myndatöku en búist er við því að hann verði frá í langan tíma, út Evrópumótið hið minnsta. Meiðslin drógu mikið úr fagnaðarlátum Dana en Lukas Jörgensen er lykilmaður í liðinu. Hann hefur orðið heimsmeistari tvisvar, skorað meira en tuttugu mörk á síðustu þremur stórmótum og var valinn í úrvalslið mótsins þegar Danir urðu Ólympíumeistarar 2024. Með Flensburg, félagsliðinu í Þýskalandi, hefur Jörgensen unnið Evrópudeildina síðustu tvö tímabil en hann verður liðsfélagi Bjarka Más Elíssonar hjá Veszprém í Ungverjalandi á næsta tímabili. „Við njótum sigursins, en við syrgjum líka fyrir Lukas. Þetta er mikið og þungt högg fyrir okkur. Við göngum héðan út með súrt bragð í munni því hann þurfti að fara af velli“ sagði liðsfélagi hans í danska landsliðinu, Kevin Möller. Landsliðsþjálfarinn Nikolaj Jakobsen sagði í morgun að annar leikmaður yrði ekki kallaður inn í staðinn. Hann vilji frekar nýta breiddina í hópnum sem hann valdi en Danir eru með tvö aðra öfluga línumenn, Emil Bergholt og Simon Hald. Danmörk stefnir á Evrópugullið í ár eftir að hafa unnið silfur og brons á síðustu mótum. Síðasti leikur liðsins í riðlakeppninni verður gegn Portúgal á morgun.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira