„Lífshættulegt“ gólf losnaði í einni af EM-höllunum Sindri Sverrisson skrifar 19. janúar 2026 15:17 NRK birti þetta skjáskot sem sýnir hvernig dúkurinn losnaði undan fótum hins tékkneska Jonas Josef sem slapp þó við meiðsli. Skjáskot/Viaplay í Noregi Mildi þykir að ekki færi verr þegar gólfdúkurinn losnaði undan fótum Tékkans Jonas Josef í leik gegn Noregi á EM í handbolta um helgina.
Norskir fjölmiðlar fjalla um málið og vitna í leikmenn norska liðsins sem segja að atvikið hefði getað valdið mjög alvarlegum meiðslum. Josef var með boltann í sókn í seinni hálfleik, í höllinni í Bærum rétt utan við Osló, þegar hann rann skyndilega til. EM fer sem kunnugt er fram í Noregi, Danmörku og Svíþjóð, þar sem riðill Íslands er spilaður. „Þetta gerðist bara í miðri baráttu. Það er lífshættulegt ef maður misstígur sig við svona og lendir illa. Þá getur hnéð farið, krossbandið eða ökklar. Það er skrýtið að þetta hafi ekki verið lagað í einu leikhléi. Sem betur fer slapp þetta til,“ sagði Tobias Gröndahl, landsliðsmaður Noregs, við NRK. Aðspurður hvað honum þætti um að svona lagað gerðist á stórmóti svaraði hann: „Það getur auðvitað gerst, það er mikill kraftur í fótum leikmannanna. Þegar það er mikill kraftur getur verið erfitt fyrir límbandið að haldast á gólfinu. Það þarf að tví- og þríathuga það svo leikmennirnir meiði sig ekki,“ sagði Gröndahl. Sander Sagosen liðsfélagi hans kippti sér ekki mikið upp við atvikið. „Það er ekki alltaf sem hlutirnir ganga samkvæmt áætlun. Ég vona að þetta haldist sem best en svona óhöpp geta orðið bæði hjá þeim [skipuleggjendum] og okkur,“ sagði Sagosen við NRK. Samkvæmt samskiptastjóra EHF, Handknattleikssambands Evrópu, verður gólfið skoðað gaumgæfilega og gengið úr skugga um að svona lagað endurtaki sig ekki. Spilað verður aftur í Bærum í kvöld þegar Tékkar mæta Úkraínu, og Frakkar mæta svo Norðmönnum klukkan 19:30. Tvær síðastnefndu þjóðirnar eru komnar áfram í milliriðil og keppa í kvöld um að taka með sér tvö stig þangað.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Sjá meira