Magnús Eiríksson borinn til grafar Jakob Bjarnar skrifar 20. janúar 2026 15:08 Synir Magnúsar, þeir Magnús Örn, Andri og Stefán Már fóru fyrir líkmönnum og báru föður sinn út að afhöfn lokinni. vísir/anton brink Magnús Eiríksson, einhver dáðasti dægurlagaperlusmiður landsins, var borinn til grafar í dag. Segja má að þjóðarsorg hafi brotist út þegar andlát hans spurðist.
Magnús fæddist í Reykjavík 25. ágúst 1945 en lést, í faðmi fjölskyldu sinnar, 9. janúar 2026 eftir erfið veikindi. Magnús lætur eftir sig þrjá syni, þá Stefán Má, Andra, Magnús Örn, tengdadætur og barnabörn. Syni sína eignaðist Magnús með Elsu Guðrúnu Stefánsdóttur Lyngdal en hún andaðist 1999. Útför var gerð frá Hallgrímskirkju en fjöldi tónlistarmanna, samstarfsmanna Magnúsar, kom fram við athöfnina, eins og lætur nærri. Snemma var ljóst að tónlistin yrði hlutskipti Magnúsar, hann lagði ungur stund á gítarnám við Tónlistarskólann í Reykjavík og lék svo með fjölda hljómsveita svo sem Pónik og Brunaliðinu. Hann var einn þeirra sem stofnuðu Mannakorn árið 1974 og var meðlimur þeirrar sveitar allt til loka. Þá starfaði Magnús við hljóðfæraverslunina Rín við Frakkastíg í fimmtíu ár og þar komst fjöldi ungra hljóðfæraleikara í kynni við hann. Pálmi Gunnarsson og Ellen Kristjánsdóttir fóru fyrir fríðum flokki tónlistamanna við athöfnina.vísir/anton brink „Lífið fór ekki alltaf mjúkum höndum um vin minn. Hann missti Elsu, stóru ástina í lífi sínu, og síðustu árin tókst hann á við erfið veikindi. En hann hélt haus, eins og hann sagði gjarnan við mig þegar ég spurði um líðan hans. Svo lyfti hann brúnum og bætti við: „Ég er búinn að gera allt sem ég þarf að gera, strákarnir mínir og allt mitt lið erum í góðum málum, hvað getur maður beðið um meira?““ skrifar Pálmi Gunnarsson söngvari með meiru í minningargrein sem birtist í Morgunblaðinu um þennan kæra vin sinn og samherja í tónlistinni. Jón Ólafsson, fyrrverandi hljómplötuútgefandi og athafnamaður, er svo einn þeirra sem birtir minningargrein um Magnús í Morgunblaðinu og hann rifjar upp tilurð Brunaliðsins en Jón hóaði saman fremstu hljóðfæraleikurum landsins þess tíma í súpergrúbbu. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason, eiginmaður forseta, létu sig ekki vanta en hálfgildings þjóðarsorg ríkti þegar Magnús féll frá.vísir/anton Brink „Þetta fór frekar leynt til að byrja með en hulunni var svipt af Brunaliðinu í sjónvarpþættinum Á vorkvöldi í apríl 1978. Rúmlega einum mánuði seinna kom platan Úr öskunni í eldinn á markað og sló rækilega í gegn. Lagið Ég er á leiðinni eftir Magga Eiríks var sumarsmellurinn.“ Jónatan Garðarsson tónlistarfræðingur ritar einnig um Magnús og segir hann einn merkasta og mikilvægasta laga- og textasmið okkar í seinni tíð nú hafa kvatt en höfundarverk hans muni halda nafni hans á lofti um ókomna tíð.
Andlát Þjóðkirkjan Tónlist Menning Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira