Alfreð kemur á óvart fyrir kvöldið Sindri Sverrisson skrifar 26. janúar 2026 15:16 Alfreð Gíslason er með þýska liðið í góðu færi á að komast í undanúrslit á EM en Danmörk og Frakkland gætu enn staðið í veginum. Getty/Sina Schuldt Það er sannkallaður risaleikur á EM í handbolta í kvöld þegar liðin sem léku til úrslita á síðustu Ólympíuleikum, Danmörk og Þýskaland, mætast. Alfreð Gíslason hefur gert óvæntar breytingar á þýska hópnum fyrir leikinn.
Þjóðverjar geta með sigri í kvöld tryggt sig inn í undanúrslit og um leið látið Dani þurfa að treysta á mikla hjálp til að komast þangað. Sagan er hins vegar ekki með Þjóðverjum sem steinlágu í úrslitaleiknum gegn Dönum á ÓL í París, 39-26, og einnig á HM fyrir ári síðan, 40-30. Sá leikur fór fram í Herning þar sem einnig verður spilað í kvöld. Lukas Zerbe hefur spilað mjög mikið á EM en verður ekki með gegn Dönum í kvöld.Getty/Sina Schuldt Bild greindi frá því í dag að þeir Lukas Mertens og Lukas Zerbe yrðu utan hóps hjá Alfreð í kvöld. Um er að ræða leikmenn sem hafa verið fyrsti kostur í vinstra og hægra horninu. Í þeirra stað munu Mathis Häseler og Matthes Langhoff koma inn í hópinn. Ein skýringin gæti verið sú hve mikið þeir Zerbe og Mertens hafa spilað hingað til á mótinu. Zerbe hefur spilað 244 af 300 mínútum Þýskalands til þessa og Mertens 236 mínútur. Hinn 23 ára gamli Langhoff er einnig sagður koma til með að styrkja varnarlínu þýska liðsins, ekki síst gegn Mathias Gidsel sem er liðsfélagi hans hjá Füchse Berlín. Häseler kemur í hægra hornið en Rune Dahmke virðist eiga að sjá um vinstra hornið allan leikinn í kvöld. Ljóst er að Þjóðverjar eiga tvo sénsa á að komast í undanúrslitin. Tapi þeir í kvöld geta þeir tryggt sig áfram með sigri gegn Frökkum á miðvikudaginn.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira