Handbolti

Segir Þjóð­verja betri án stórstjörnunnar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð Gíslason ræðir við Juri Knorr sem þykir ekki hafa náð sér nógu vel á strik á Evrópumótinu.
Alfreð Gíslason ræðir við Juri Knorr sem þykir ekki hafa náð sér nógu vel á strik á Evrópumótinu. getty/Sina Schuldt

Lasse Svan, fyrrverandi leikmaður danska handboltalandsliðsins, segir að þýska liðið sé betra þegar stórstjarnan Juri Knorr er ekki inni á vellinum.

Knorr hefur ekki sýnt sínar bestu hliðar á EM og ekki spilað eins mikið og við var búist. Hann virtist meðal annars gagnrýna Alfreð Gíslason, þjálfara þýska liðsins, eftir tapið ótrúlega gegn Serbíu.

Þjóðverjar mæta Dönum í næstsíðasta leik sínum í milliriðli I í kvöld. Lasse Svan telur ganginn í þýska liðinu sé betri þegar Knorr er utan vallar.

„Þegar þeir spila með Juri Knorr geta frábærir hlutir gerst. Hann er virkilega, virkilega fær leikmaður sem kann alla þætti leiksins. En það verður líka mjög mikið um einstaklingsframtak þegar þeir spila með Juri Knorr. Mér finnst að þegar hann er á bekknum flæði leikur þeirra mun betur,“ sagði Lasse Svan.

„Það virkar eins og leikmenn þekki hlutverk sitt mun betur. Þeir þekkja hvern annan og hlaupa leiðirnar. Svo koma bara fleiri mistök þegar hann er á vellinum. Það er auðvitað hægt að lifa með því þegar honum tekst vel upp í mörgu en í leik eins og gegn Noregi, þar sem hann skorar eitt mark og gerir fjölda tæknilegra mistaka, er hann mínus leikmaður.“

Knorr, sem leikur með Álaborg í Danmörku, hefur skorað sextán mörk á EM en er aðeins með 47 prósenta skotnýtingu. Þá hefur hann tapað boltanum fimmtán sinnum á mótinu en enginn annar leikmaður hefur gert jafn mörg tæknileg mistök.

Þjóðverjar eru á toppi milliriðils I með sex stig en Danir eru í 3. sætinu með fjögur stig. Frakkar, sem leika gegn Spánverjum í viðureign sem hófst klukkan 17:00, eru í 2. sæti milliriðilsins með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×