Segir að hrokinn hafi orðið Frökkum að falli Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. janúar 2026 10:30 Guillaume Gille, þjálfari franska handboltalandsliðsins, steinhissa á hliðarlínunni í leiknum gegn Spáni. getty/Sina Schuldt Að mati sérfræðings TV 2 í Danmörku varð hrokafullt viðhorf franska handboltalandsliðinu að falli í tapinu fyrir því spænska á Evrópumótinu.
Frakkar töpuðu nokkuð óvænt fyrir Spánverjum, 36-32, í næstsíðasta leik sínum í milliriðli II á EM í gær. Frönsku Evrópumeistararnir mæta Þjóðverjum í lokaleik sínum á morgun og verða að vinna til að komast í undanúrslit. Claus Møller Jakobsen, sérfræðingur TV 2, hreifst ekki af franska liðinu í leiknum gegn Spáni í gær. „Þetta er gríðarlegt áfall. Ofboðslega hrokafullt viðhorf frá Frakklandi í þessum leik,“ sagði Jakobsen. Honum fannst Guillaume Gille, þjálfari Frakka, bregðast í leiknum í gær og gagnrýndi leikstjórn hans. „Þeir fara út og láta Spánverja gjörsamlega keyra yfir sig. Láta spila sig út úr stöðu taktískt án þess að Gille bregðist við. Þetta er ótrúlega léleg þjálfun af hans hálfu,“ sagði Jakobsen. Lasse Svan, fyrrverandi leikmaður danska landsliðsins, tók í sama streng og Jakobsen. „Frakkland leit út eins og lið sem hélt að hlutirnir kæmu af sjálfu sér. Þeir höfðu keyrt yfir Portúgal og ætluðu að gera slíkt hið sama við Spán. Það raungerðist ekki. Þeir vissu ekki hvað á þá stóð veðrið,“ sagði Lasse Svan sem fannst skrítið þegar Gille bætti loks við aukamanni í frönsku sóknina undir lok leiks. Að hans mati hefði hann átt að grípa til þess ráðs miklu fyrr. „Þetta hefði franski landsliðsþjálfarinn átt að gera eftir tíu mínútur í fyrri hálfleik, þegar hann sá að þeir gátu ekki leyst þetta. Ég veit bara ekki hvað ég á að segja. Það er fínt að bregðast við en þetta kom 45 mínútum of seint,“ sagði gamli hornamaðurinn. Fyrir leikinn í gær hafði Spánn tapað þremur leikjum í röð, í fyrsta sinn á Evrópumóti. Þrátt fyrir sigurinn á Frökkum eru Spánverjar enn í neðsta sæti milliriðils I og eiga afar litla möguleika á að komast í undanúrslit.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira