Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Lovísa Arnardóttir skrifar 27. janúar 2026 12:35 Íbúar í Reykjanesbæ, Vogum og Suðurnesjabæ gætu fundið meiri hveralykt af vatninu í dag og næstu daga. Vísir/Vilhelm Tímabundið getur verið meiri hveralykt af vatni en venjulega í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum vegna íblöndunar súlfíts í heita vatnið. Íblöndunin er vegna viðhalds og viðgerðar HS Orku á búnaði sínum á Fitjum í Reykjanesbæ. Fólk sem viðkvæmt er fyrir súlfíti í matvælum er bent á að heita vatnið sé ekki ætlað til neyslu eða til matreiðslu.
Íblöndunin mun standa yfir þar til rekstrarskilyrði kerfisins eru komin í eðlilegt horf á ný. Áætlaður verktími er um þrír sólarhringar. Í tilkynningu segir að um sé að ræða aðferð sem búast megi við að notuð verði í framtíðinni þegar aðstæður krefjast. Í tilkynningu frá HS Orku kemur fram að á meðan viðhaldið stendur yfir séu líkur á að styrkur súrefnis í vatninu aukist. Tilgangur íblöndunarinnar sé að draga úr styrk súrefnis áður en vatni er dreift til notenda. Með þessari aðgerð verði dregið úr líkum á að súrefni geti valdið tæringu í dreifikerfi hitaveitunnar og lagnakerfi húsa. Í tilkynningunni segir að slík íblöndun sé þekkt og rótgróin aðferð í hitaveitukerfum á Íslandi og hafi verið beitt í áratugi við sambærilegar aðstæður. Í tilkynningu segir að í þeim styrk sem um ræður eigi natríumsúlfíð ekki að hafa önnur áhrif en þau að tímabundið geti komið hveralykt af heita vatninu. Styrkur efnisins verður vaktaður af HS Orku til að tryggja að hann sé innan viðmiðunarmarka og að tilgangi íblöndunarinnar sé náð. Við hana mun styrkur súlfíts í heita vatninu aukast örlítið og því er fólki sem er viðkvæmt fyrir súlfíti í matvælum bent á að hafa í huga að heita vatnið er ekki ætlað til neyslu né að það sé notað við matreiðslu.
Reykjanesbær Vogar Suðurnesjabær Vatn Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Sjá meira