Alfreð brosti breitt: „Hafði hárrétt fyrir mér sem betur fer“ Sindri Sverrisson skrifar 29. janúar 2026 07:59 Alfreð Gíslason var glaðbeittur eftir að hafa náð að taka leikhlé á hárréttum tímapunkti og aðstoðarmanni hans var ekki síður skemmt. Skjáskot/RÚV2 Þó að spennan væri í hámarki í leik Þýskalands og Frakklands á EM í handbolta í gær gat Alfreð Gíslason gat ekki annað en brosað breitt þegar hann tók leikhlé á hárréttum tímapunkti, öfugt við umdeilt leikhlé sem hann tók fyrr í mótinu.
Staðan var 30-28 Þýskalandi í vil í leiknum mikilvæga í gær sem var hreinlega upp á það hvort liðanna kæmist í undanúrslit. Þjóðverjar voru með boltann og í þann mund sem þeir gáfu misheppnaða línusendingu, og hefðu þá fengið hraðaupphlaup í bakið, tók Alfreð afar mikilvægt leikhlé. Það gekk svo vel upp að Þýskaland skoraði og jók muninn í þrjú mörk, þegar liðið hefði getað misst forskotið niður í eitt mark og enn níu mínútur til stefnu, ef Alfreð hefði ekki verið svona á tánum. „Ég hef tekið svona áhættu tíu sinnum á ferlinum og einu sinni klikkaði ég. Það var á móti Serbíu því ég var að horfa á klukkuna til að sjá hvað væri mikið eftir. Það voru mistök hjá mér. Í dag hafði ég heppnina með mér. Ég hélt að sendingin myndi ekki koma því þeir voru að verjast við sex metra línuna. Ég hafði hárrétt fyrir mér, sem betur fer,“ sagði Alfreð glaðbeittur í viðtali eftir sigurinn í gær. Alfreð brosti líka breitt þegar hann hafði tekið leikhléið og aðstoðarmaður hans var nánast hlæjandi yfir því hve vel tókst til, í ljósi þess sem á undan var gengið. Alfreð hafði verið gagnrýndur fyrr í mótinu eftir að hann tók leikhlé í tapleiknum gegn Serbíu í riðlakeppninni og kom þannig í veg fyrir mark frá Juri Knorr. Alfreð viðurkenndi strax mistök sín og á endanum skipti tapið gegn Serbíu ekki neinu máli því Serbar sátu eftir í riðlakeppninni. Þýskaland hefur síðan unnið alla sína leiki fyrir utan tap gegn Danmörku, endaði í 2. sæti síns milliriðils og mun spila við Króatíu í undanúrslitunum á morgun, áður en Íslendingar takast á við Dani.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira