Skuldar þjálfara Dana öl Sindri Sverrisson skrifar 29. janúar 2026 09:33 Nikolaj Jacobsen þiggur eflaust ölið eins og Dana er siður. Getty/Sina Schuldt Þó að Danir væru þegar búnir að tryggja sig inn í undanúrslit á EM í handbolta, fyrir leiki gærdagsins, þá höfðu úrslitin í leik þeirra gegn Noregi afar mikla þýðingu fyrir önnur lið.
Danmörk og Noregur mættust þegar öll önnur úrslit voru ráðin og Danir vissu að sigur myndi færa þeim leik við Ísland í undanúrslitum en að tap þýddi að þeir myndu mæta Króatíu. Hins vegar hafði leikurinn líka mikil áhrif á Portúgal sem að lokum endaði í 3. sæti milliriðils I, á eftir Danmörku og Þýskalandi, og tryggði sér þar með farseðil á HM á næsta ári. Þangað fara liðin sex sem enda efst á EM. Portúgalar unnu átta marka sigur gegn Spáni í gær en þurftu svo að bíða og vona að Alfreð Gíslason myndi stýra Þjóðverjum til sigurs gegn Frökkum, og að Danmörk myndi vinna Noreg. Þetta gekk eftir en portúgalski landsliðsþjálfarinn Paulo Pereira vissi að það myndi eflaust ekki saka að lofa kollega sínum hjá Danmörku, Nikolaj Jacobsen, góðum bjór ef liðið ynni Noreg og myndi þannig senda Portúgal á HM 2027. Því lofaði hann í viðtali við TV 2 í Danmörku eftir sigurinn gegn Spáni í gær: „Við skulum sjá hvað gerist í hinum leikjunum. Ég vona að Danmörk tapi ekki eins og á síðasta EM, gegn Slóveníu. Þá gátum við líka komist í leikinn um 5. sætið ef allt hefði gengið upp. En ef Danmörk vinnur [í gær] þá kaupi ég bjór handa Nikolaj Jacobsen,“ sagði Pereira hress. Paulo Pereira og hans menn hafa sýnt að Danir eru ekki ósigrandi. EPA/Bo Amstrup Portúgal er eina liðið sem unnið hefur Danmörku á EM til þessa en Íslendingar freista þess að gera slíkt hið sama í undanúrslitaleiknum annað kvöld, klukkan 19:30.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira