Handbolti

Gidsel gefur lítið fyrir tuð Þjóð­verja

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mathias Gidsel og félagar í danska handboltalandsliðinu geta orðið Evrópumeistarar á morgun, í fyrsta sinn í fjórtán ár.
Mathias Gidsel og félagar í danska handboltalandsliðinu geta orðið Evrópumeistarar á morgun, í fyrsta sinn í fjórtán ár. getty/Sina Schuldt

Mathias Gidsel, markahæsti leikmaður Evrópumótsins í handbolta, segir að stuðningsmönnum Danmerkur sé frjálst að styðja liðið á þann hátt sem þeir kjósi.

Danmörk mætir Þýskalandi í úrslitaleik EM í Jyske Bank Boxen í Herning á morgun. Danir unnu Íslendinga í undanúrslitunum í gær, 31-28, á meðan Þjóðverjar unnu Króata með sömu markatölu.

Í þýskum fjölmiðlum hefur borið á gagnrýni á að stuðningsmenn Danmerkur bauli og blístri þegar andstæðingurinn er í sókn. Einhverjum Þjóðverjum þykir þetta lýsa vanvirðingu í garð mótherjans. Gidsel gefur lítið fyrir þá gagnrýni.

„Þetta fylgir þessu. Það er bara af því að þeir eru að styðja okkur og svona á þetta að vera í íþróttum. Fyrirgefðu en ég skil þetta bara alls ekki,“ sagði Gidsel.

„Ég skil ekki alveg umræðuna. Svona er að vera á útivelli. Við erum í Danmörku og höllin er nánast full af Dönum. Ég yrði leiður ef þeir styddu ekki landsliðið sitt af fullum krafti.“

Miklu verra í Þýskalandi

Gidsel spilar í Þýskalandi, með Füchse Berlin, og segir að þar láti stuðningsmenn miklu verr.

„Ég er vanur að spila í þýsku deildinni og þar er þetta miklu verra. Og svona á það að vera. Þegar ég spila í Flensburg, Kiel eða Magdeburg eiga stuðningsmenn þeirra að sjálfsögðu að setja pressu á mig, því ég spila ekki fyrir þá,“ sagði Gidsel og bætti því við að hann og félagar hans í danska landsliðinu hefðu aldeilis fengið að heyra það þegar þeir mættu Þýskalandi í Köln í undanúrslitum á EM fyrir tveimur árum.

Gidsel skoraði sjö mörk í leiknum gegn Íslandi á föstudaginn og hefur alls gert 61 mark á EM, líkt og Portúgalinn Francisco Costa. Hann spilar þó ekki fleiri leiki á mótinu.

Úrslitaleikur Danmerkur og Þýskalands hefst klukkan 17:00 á morgun og verður í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×