Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 2. febrúar 2026 20:01 Steindór Gestur og Helgi Albert voru að gefa út lagið Talaðu við mig. Axel Magnús Steindór Gestur Guðmundarson, einnig þekktur sem Sdóri, og Helgi Albert Reinharðsson eða Helgi A hafa skapað tónlist saman í rúman áratug en þeir hófu tónlistarferil sinn í rappgrúbbunni Landaboi$. Þeir bjuggu í sömu blokk sem unglingar og hafa allar götur síðan verið óaðskiljanlegir en þetta tvíeyki var að senda frá sér lag og brakandi ferskt tónlistarmyndband.
Strákarnir eru fæddir árið 1998 og hafa komið víða við í tónlistinni. Sem hluti af Landaboi$ hafa þeir gefið út þrjár plötur en hafa þar að auki komið fram sem gestaflytjendur hjá aragrúa tónlistarfólks. Ber þar títt samstarf þeirra við JóaPé og Króla ef til vill hæst. Þeir voru að senda frá sér sitt fyrsta lag sem dúó en lagið ber nafnið Talaðu við mig. Samhliða því kom út tónlistarmyndband sem má sjá í spilaranum hér að neðan: Klippa: Helgi A og Sdóri - Talaðu við mig. Helgi A og Sdóri kynntust í Breiðholtsskóla þar sem þeir voru saman í árgangi. Á þeim tíma var vinskapur þeirra ágætur, en hann átti eftir að dýpka verulega síðar. „Ég fluttist úr Breiðholtinu í nokkur ár en sneri svo aftur þegar við voru komnir á menntaskólaaldur. Þá flutti ég í sömu blokk og Steindór og á skömmum tíma urðum við algjörlega óaðskiljanlegir,“ segir Helgi. Báðir höfðu þeir brennandi áhuga á rapptónlist og fljótlega kviknaði hjá þeim löngun til að skapa, taka upp og senda frá sér sína eigin tónlist. Á árunum 2016-2019 gáfu þeir út tónlist undir formerkjum Landaboi$, en nú hafa nágrannarnir úr Ferjubakkanum myndað nýtt rappdúó, Helgi A og Sdóri. Helgi A og Sdóri eru einna þekktastir fyrir að vera flinkir pennar, en nýja lagið leggur meiri áherslu á tilfinningu en flókið innihald. „Þetta lag varð til á örfáum mínútum og fangar bæði góða stemningu og smá stæla,“ segir Steindór brosandi og bætir við: „Lagið var framleitt af Hugin Goða, sem gengur undir listamannanafninu Fríó. Hljóðblöndun og hljóðjöfnun var í höndum Starra Snæs sem er betur þekktur sem Starri on the beat. Umslag smáskífu og klippingtónlistarmyndbands var í höndum Axels Magnúsar Kristjánssonar og Ísaks Emanúels Glad Róbertssonar, sem saman mynda listahópinn Geltari. Lagið er í Jersey club-stíl en sá stíll hefur fram að þessu ekki verið áberandi í íslensku rappi.“
Tónlist Mest lesið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist „Erum bara vinir“ Lífið Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Tíska og hönnun Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar Lífið samstarf Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir Lífið Fleiri fréttir Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira