Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Ágúst Orri Arnarson skrifar 2. febrúar 2026 20:32 Simon Pytlick skoraði mest og fagnaði líka mest í gær. EPA/Bo Amstrup DENMARK OUT Danska handboltalandsliðið fagnaði gullverðlaunum Evrópumótsins með rútuferð um Kaupmannahöfn og mikilfenglegri móttöku á Ráðhústorginu en skyttan Simon Pytlick virðist hafa gengið aðeins of hratt um gleðinnar dyr í gærkvöldi.
Flestallir þeirra þúsunda sem mættu virtust vera í góðum gír þó kuldinn í Köben biti aðeins frá sér. Dönsku gulldrengirnir sungu og trölluðu, einhverjir í fyrsta sinn, eins og Mads Svane Knudsen sem missti sig aðeins og knúsaði Maríu Danadrottningu, en ekki margir í þessum hópi voru með sína fyrstu gullmedalíu um hálsinn. Mads Svane með sína fyrstu gullmedalíu. TV2 Rasmus Lauge lofaði því að hann væri ekki hættur með landsliðinu og stefndi á að verða fimmfaldur heimsmeistari á næsta ári. Þúsundir biðu eftir dönsku gulldrengjunum. TV2 Mathias Gidsel sagði að núna myndi fólk loksins hætta að gera grín að Danmörku. „Allur handboltaheimurinn hefur strítt okkur og sagt við gætum ekki unnið EM, en núna sjá allir að við getum líka fundið leiðir til að vinna EM“ sagði sá markahæsti á svölum Ráðhússins. Mathias Gidsel með skjöldinn. TV2 Aðrir voru feimnir, eins og markmaðurinn Kevin Möller, sem var valinn mikilvægasti leikmaður úrslitaleiksins í gær. Hann sagðist ekki njóta sviðsljóssins, en Emil Nielsen var til í að taka sjálfsmyndir með áhorfendunum. Þeirra á meðal var þýski markmaðurinn Oliver Kahn. Simon Pytlick, markahæsti leikmaðurinn í úrslitaleiknum, átti aðeins erfitt með sig í dag og sagði partýið í gærkvöldi sitja í sér. „Ég finn aðeins fyrir þessu. Ég hafði allavega ekki lyst á pönnukökunum í Ráðhúsinu“ sagði Pytlick en hann þarf að vera fljótur að jafna sig því danska landsliðið er á leiðinni í eftirpartý á Søpavillonen, skemmtistað í Kaupmannahöfn sem yngri bróðir Nikolaj Jacobsen á. Eksta Bladet greindi frá því.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira