Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. febrúar 2026 21:01 Aðstæðurnar hafa haft mikil áhrif á líf fuglanna. Vísir/Lýður Valberg Dýravinir hafa miklar áhyggjur af aðstæðum fugla í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem framkvæmdir hafa orðið til þess að verulega hefur grynnkað í Hamarskotslæk. Bæjarstjóri segir framkvæmdirnar hafa verið nauðsynlegar.
Verið er að gera við skólplögn sem liggur undir læknum en samkvæmt upplýsingum frá bæjaryfirvöldum var hún illa farin. Fulltrúi dýraverndarsamtaka segir framkvæmdirnar hafa tekið sinn toll á fuglalífinu við lækinn. „Þetta hófst fyrir svona viku síðan. Þá sáum við að vatnið hvarf úr læknum og fuglarnir urðu mjög stressaðir sem von er því þetta er þeirra heimili. Þeir búa hér á veturna og við höfum verið að sjá stóra hópa fljúga yfir, svona flóttaviðbrögð, svo hefur fækkað mjög,“ segir Ingiveig Gunnarsdóttir formaður Dýravaktarinnar. Álftir við lækinn hafi verið um hundrað talsins en nú séu einungis tæp fjörutíu eftir. Ásta Ástmundsdóttir íbúi sem búið hefur við lækinn um ára bil segist ekki muna annað eins. „Ég er búin að búa í Hafnarfirði í 46 ár. Ég hef aldrei séð svona. Þetta er einstakt. Það er mjög skrítið að gera þetta á þessum árstíma þegar allir fuglarnir eru hérna að gera þetta ekki að sumri til þegar það er enginn fugl. Auðvitað þarf að framkvæma og laga og gera til, það er alveg skiljanlegt en ekki þegar fuglarnir eru hér að treysta á mannfólkið.“ Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar segist skilja áhyggjur af velferð fuglanna. „Lækurinn er bæjarstolt okkar Hafnfirðinga, við viljum sjá mikið líf þar, bæði fólk og dýralíf. Þannig ég hef fullan skilning á því. En þetta hefur verið gert að minnsta kosti einu sinni áður svo við munum eftir í seinni tíð, það eru svona fimm ár síðan.“ Framkvæmdirnar þá hafi ekki haft áhrif á dýralíf. „Því þetta tekur mjög skamman tíma, vissulega mjög leiðinlegt á meðan þessu stendur en þetta tekur það stuttan tíma að þetta á bara allt saman að vera komið í lag strax eftir helgi.“
Hafnarfjörður Fuglar Dýr Skólp Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira